Fær ekki Orkuveitugögn afhent Helga Arnardóttir skrifar 8. apríl 2011 13:02 Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og varamaður í stjórn Orkuveitunnar fær ekki afhendar fundargerðir stjórnar Orkuveitunnar frá stofnun hennar árið 2000 til ársins 2008. Hún segir ótækt með öllu að leynd skuli ríkja yfir þessum gögnum, sérstaklega í ljósi þess að gera eigi allsherjar úttekt á rekstrinum. Slæm skuldastaða Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið mikið til umfjöllunar að undanförnu og nýlega var samþykkt í borgarráði að setja alls tólf milljarða króna í Orkuveituna til að bjarga rekstrinum. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi er varamaður í stjórn Orkuveitunnar og hefur kallað eftir öllum fundargerðum stjórnarinnar allt frá árinu 2000 til 2008. „Ég fékk fyrirspurnir frá fólki úti í bæ um ákveðið mál sem á rætur sínar að rekja aftur í tímann í Orkuveitunni. Ég ætlaði að grennslast fyrir um þetta mál en minni beiðni um þessar upplýsingar var hafnað," segir Þorbjörg Helga. Hún segist ekki hafa fengið skýringar á því hvers vegna hún fær ekki aðgang að þessum upplýsingum. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að gera allsherjar úttekt á rekstri orkuveitunnar frá stofnun hennar. „Þess vegna kemur kannski meira á óvart að þetta skuli vera lokað og læst," segir Þorbjörg. Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar segir í samtali við fréttastofu að í starfsreglum orkuveitunnar frá 2003 hafi verið ákveðið að trúnaður ríkti yfir öllum fundargerðum frá stofnun félagsins. Þar geti meðal annars verið viðkvæmar upplýsingar um viðskiptavini og önnur viðskipti félagsins á raforkumarkaði. Stjórn Orkuveitunnar geti eingöngu aflétt trúnaði yfir fundargerðum. Trúnaði hafi hins vegar verið aflétt frá 2008 og til dagsins í dag. Allar fundargerðir fyrir þann tíma séu trúnaðarmál og eingöngu stjórnarmaður í orkuveitunni geti fengið aðgang að þeim. Varamenn í stjórn félagsins, borgarfulltrúar eða almenningur hafa því ekki aðgang að þessum upplýsingum. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður í Orkuveitunni segir fráleitt að varamenn fái ekki aðgang að sömu gögnum og aðalmenn. Mikilvægt sé að þeir fái sömu upplýsingar til að geta sinnt sínu starfi. Kjartan hyggst leggja fram tillögu um að leynd verði aflétt af fundargerðum allt frá árinu 2000 á næsta stjórnarfundi.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira