Menntskælingar keppa um hálfa milljón í söngkeppni 8. apríl 2011 20:15 Kristmundur Axel. Borgarholtsskóli bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna í fyrra. Það voru félagarnir Kristmundur Axel og Júlí Heiðar sem sungu til sigurs með íslenskri rappaðri útgáfu af lagi Erics Clapton Tears in Heaven. Mynd/Stefán Karlsson „
Það er engin kreppa í söngkeppninni. Kreppan er bara búin," segir Tindur Jensson, verkefnisstjóri hjá viðburðafyrirtækinu AM Events. Fyrirtækið heldur utan um Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram á laugardaginn. Sigurvegarinn fer ekki heim með tvær hendur tómar þegar úrslitin verða kunngjörð í beinni útsendingu á Stöð 2 því hann fær verðlaun sem nema um hálfri milljón íslenskra króna. Meðal þess er ferð fyrir einn til Ibiza með öllu tilheyrandi, iPhone 4 sími, árskort í Hreyfingu og 60 þúsund króna úttekt frá Cintamani auk tveggja daga í Stúdíó Sýrlandi.Sigurvegarinn í verður leystur út með glæsilegum vinningum. Hann fær úttekt úr Cintamani, iPhone 4 síma, ferð til Ibiza með öllu tilheyrandi, árskort í Hreyfingu og tvo daga í Stúdíó Sýrlandi. Sverrir Bergmann, sem vann keppnina árið 2000, fékk bláan Ericsson-síma, farandbikar og út að borða fyrir tvo.„Tímarnir breytast, þetta eru allsvakaleg verðlaun. Ætli skólinn min, Margmiðlunarskólinn, geti tekið þátt?" spyr Sverrir Bergmann, sem vann þessa keppni árið 2000 þegar hann söng Bon Jovi slagarann Always við íslenskan texta Auðuns Blöndal. Verðlaunin þá voru ekkert í líkingu við það sem tíðkast nú. „Ég man mjög vel að ég fékk farandbikar en ekki eignarbikar, sem var mjög súrt, og svo einhverja tíma í hljóðveri," rifjar Sverrir upp. Hann fékk reyndar líka síma eins og sigurvegarinn í ár; bláan Sony Ericsson og honum fylgdi símanúmer. „Hann þótti mjög flottur á sínum tíma og hefur örugglega kostað fimmtán þúsund krónur." Sverrir fékk einnig út að borða fyrir tvo en man ómögulega á hvaða veitingastað það var. „Ég man bara að ég fékk mér pitsu." Alls keppir 31 atriði um þennan eftirsóknarverða titil en við sögu kemur 71 keppandi frá öllu landinu. Keppnin fer að venju fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, sem tekur tvö þúsund gesti í sæti, og munu Mið-Íslands félagarnir Jóhann Alfreð og Bergur Ebbi kynna keppnina í ár. Öll gistihús og hótel eru uppbókuð fyrir norðan enda fer snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme fram á sama tíma. Er því búist við metfjölda menntskælinga til bæjarins um helgina. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Fleiri fréttir Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Sjá meira