Landfræði á hjólum og Jarðfræðistrætó 8. apríl 2011 17:43 Mynd/Pjetur
Jarðfræði, landfræði og líffræði verða í forgrunni hjá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands um helgina þegar sviðið heldur áfram að fagna aldarafmæli háskólans með fjölbreyttum viðburðum. Almenningi gefst kostur á að fara í þrjár áhugaverðar skoðunarferðir í fylgd vísindamanna sviðsins. Fyrsta ferðin verður á morgun laugardag en þá verður farið í rútu um Reykjanes þar sem jarðfræði og fuglalíf nessins verður skoðað. Páll Einarsson, prófessor við Jarðvísindastofnun, annast leiðsögn ásamt Gunnari Þór Hallgrímssyni fuglafræðingi. Páll er einn helsti sérfræðingur landsins í jarðskjálftum og Gunnar Þór hefur unnið að doktorsverkefni um máfa og tófur á Reykjanesi ásamt því að hafa stundað rannsóknir á fuglalífi svæðisins fyrir Náttúrustofu Reykjaness í Sandgerði, að því er fram kemur í tilkynningu. Lagt verður af stað frá Öskju – náttúrufræðahúsi við Sturlugötu klukkan 10 á laugardagsmorgun og áætlað er að koma til baka um klukkan 17. Á sunnudeginum 10. apríl verður boðið upp á tvær fræðsluferðir, Jarðfræðistrætó og Landfræði á hjólum. Jarðfræðistrætóinn leggur af stað frá Öskju klukku 10 á sunnudagsmorgun. Ekið verður vítt og breitt um borgina og stoppað á völdum stöðum þar sem hugað verður að megindráttum í jarðfræðilegri gerð höfuðborgarsvæðisins. Leiðsögn í Jarðfræðistrætónum verður í höndum Hreggviðs Norðdahls, fræðimanns á Jarðvísindastofnun. Reiknað er með að ferðin taki um þrjár klukkustundir. Í síðarnefndu ferðinni, Landfræði á hjólum, verður farið í könnunarleiðangur á reiðhjólum um miðborg Reykjavíkur og nágrenni. Staldrað verður við á nokkrum stöðum og fjallað um ýmis atriði borgarumhverfisins með augum landfræðinga, þar á meðal breytingar á landnotkun, íbúasamsetningu og umferðarmál. Karl Benediktsson, prófessor í landfræði, er leiðsögumaður í þessari ferð. Þátttakendur eru beðnir um að mæta á hjóli í Öskju klukkan 13:45 en lagt verður af stað klukkan 14. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil tvær klukkustundir. Vakin er athygli á því að áhugasamir þurfa að skrá sig í skoðunarferðina á Reykjanes á laugardag og sömuleiðis í Jarðfræðistrætóinn á sunnudag. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með því að senda póst á von@hi.is.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira