Segir verktakafyrirtæki reyna að græða á félagslegum afslætti 26. nóvember 2007 18:42
Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar óttast að verktakafyrirtæki í Reykjavík sé að reyna stinga afslætti sem eingöngu er ætlaður félagslegum íbúðaúrræðum í eigin vasa. Fyrirtækið hafi fengið afslátt af lóða- og gatnagerðargjöldum en ætli nú að selja íbúðirnar á fullu markaðsverði til ríkisins. Um er að ræða íbúðir á lóð númer 6 við Starengi í Grafarvogi. Lóðinni var úthlutað til verktakafyrirtækisins Starengi ehf. árið 2004 með þeirri kvöð að þar yrðu staðsettar leiguíbúðir fyrir námsmenn. Í staðinn fékk fyrirtækið afslátt af lóða- og gatnagerðargjöldum. Fyrirtækið hóf nýlega viðræður við ríkið sem ætlar kaupa íbúðirnar vegna átaks í íbúðamálum geðfatlaðra. Hefur fyrirtækið óskað eftir því við borgaryfirvöld að kvöðum af íbúðunum verði aflétt til þess að af sölunni geti orðið. Umsókn Starengis ehf var tekin fyrir á fundi borgarráðs síðastliðinn fimmtudag en þar óskaði Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, eftir því að málinu yrði frestað. Í samtali fréttastofu sagðist Björk hafa undir höndum upplýsingar sem bentu til þess að Starengi ehf ætli að selja íbúðirnar á fullu markaðsvirði til ríkisins. Segir hún að með því sé fyrirtækið reyna að hagnast á þeim afslætti sem því var upphaflega gefinn - afslætti sem eingöngu sé gefinn til félagslegra úrræða og ekki sé ætlað að enda í vasa verktakafyrirtækja. Á vef Fasteignmats ríkisins kemur fram að íbúðirnar séu metnar á allt að 70 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu hefur ríkið nú þegar ákveðið að ganga að tilboði eiganda íbúðanna en ekki fengust upplýsingar um kaupverð. Ekki náðist í eiganda Starengis ehf. í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira