Bændur ósáttir við að þurfa að setja kýrnar í haga 26. nóvember 2007 19:52
Bændur eru sumir ósáttir við að neyðast til að setja kýr sínar á beit út í haga. Bændasamtökin eru hins vegar einbeitt í að halda þeirri reglu til streitu að beljur fái að viðra sig úti - þótt víða í Evrópu séu bændur jafnvel hættir útibeit.Þegar fólk af malbikinu keyrir um þjóðvegi landsins finnst mörgum tilheyrandi og fagurt að sjá blómlegar kýr á beit í haga. Raunar er það svo að, bændum ber, að hleypa kúm úr fjósi minnst átta vikur á hverju sumri. Þó ku liðin tíð, að nokkru leyti að það sé jafn ærslafengin sjón og áður að sjá beljurnar sleppa út á vorin. Því tölvustýrð lausagöngufjós eru gerólík fjósum fortíðar þar sem kýr voru bundnar á sínum bás. Formaður Bændasamtakanna kveðst ekki hafa sannreynt að til séu bændur sem ekki hleypi kúm út úr fjósi.Nokkur umræða hefur verið um lausagöngu kúa í Bændablaðinu. Þar hefur komið fram að þeim fjölgar evrópsku kúnum sem aldrei koma út undir bert loft. Tæp fimmtán prósent stofnsins í Hollandi fer aldrei út - og tæplega þriðja hver dönsk kýr fer aldrei út undir bert loft og syðst í Þýskalandi er 80-90% kúa aldrei hleypt úr fjósi. Lagaskylda um útibeit kúa mun aðeins vera í tveimur löndum, Íslandi og Svíþjóð. Hins vegar er útibeitin víða talin nauðsynlegur hluti af ímynd mjólkurframleiðslunnar. Eða eins og Torfi Jóhannesson ráðunautur hefur sagt þá má líta svo á "kýrnar séu eins og stórt auglýsingaspjald fyrir framleiðsluvörur bænda."
Mest lesið Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Fékk hláturskast í ræðustól Innlent Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Sigríði Innlent Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Innlent Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Erlent Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Erlent „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Innlent Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Innlent Fleiri fréttir Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Þinglok, Íran og rökrætt um skattastefnu Einn handtekinn eftir hópslagsmál Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Sjá meira