Þingeyingar og Skagfirðingar segja grafið undan búsetu í héruðunum Kristján Már Unnarsson skrifar 14. október 2011 19:08
Niðurskurður heilbrigðisstofnana á Húsavík og Sauðárkróki er í raun ákvörðun um að leggja af sjúkrahúsþjónustu í Þingeyjarsýslum og Skagafirði, að mati sveitarstjórnarmanna þessara héraða, sem telja að verið sé að kippa enn einni stoðinni undan búsetu á landsbyggðinni. Aðför að landsbyggðinni, stóð á spjöldum þegar yfir þúsund manns mættu í íþróttahúsið á Húsavík í október fyrra til að mótmæla niðurskurði. Nú á aftur að skera niður, um níu prósent, og segjast ráðamenn í Þingeyjarsýslum horfa fram á 33 prósenta niðurskurð á fjórum árum. Ráðamenn í Skagafirði sjá fram á sambærilegan niðurskurð. Þeir Gunnlaugur Stefánsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings, og Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar, lýstu afleiðingunum í viðtali í fréttum Stöðvar 2. Þeir greindu frá því hvernig sjúkrahúsþjónusta er að leggjast af. Eftir verði aðeins heilsugæsla. Það geti menn ekki sætt sig við. Þetta þýði verri lífskjör íbúa þessara héraða þegar þjónustan flyst til Akureyrar og Reykjavíkur. Störfum háskólamenntaðra fækki og einnig sé verið að fækka kvennastörfum, en það sé sérlega bagalegt. Þeir benda á að góð heilbrigðisþjónusta sé stór þáttur í vali fólks á búsetu. Þingeyingar minna á fimm mánaða gamla yfirlýsingu þar sem ríkisstjórnin lofar að standa vörð um opinbera þjónustu á svæðinu. Í viljayfirlýsing ríkisstjórnar og sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum, sem undirrituð var þann 25. maí 2011, segir: ,,Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að staðinn verði vörður um opinbera þjónustu á svæðinu, sem nauðsynleg er þegar til uppbyggingar kemur."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira