Innlent

Önnur tillagan um staðfesta samvist dregin til baka á Kirkjuþingi

Hulda Guðmundsdóttir var meðal þeirra sem mæltu fyrir tillögu um staðfesta samvist sem nú hefur verið dregin til baka.
Hulda Guðmundsdóttir var meðal þeirra sem mæltu fyrir tillögu um staðfesta samvist sem nú hefur verið dregin til baka. MYND/GVA

Önnur tillagan sem lögð var fram á Kirkjuþingi og snýr að staðfestri samvist samkynhneigðra hefur verið dregin til baka. Þetta kemur fram á vef Kirkjuþings.

Um er að ræða tillögu sem prestarnir Kristín Þórunn Tómasdóttir og Jón Helgi Þórarinsson og Hulda Guðmundsdóttir guðfræðingur lögðu fram. Í henni er lagt til að að prestum Þjóðkirkjunnar verði heimilt að vígja í staðfesta samvist verði trúfélögum veitt slík lagaheimild.

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, mælti fyrir hinni tillögunni sem gerði ráð fyrir að prestum yrði heimilað að staðfesta samvist samkynhneigðra ef þeir kysu og ef lögum yrði breytt. Auk þess var kveðið á um það í tillögu biskups að þjóðkirkjan stæði við hefðbundinn skilning á hjónabandinu sem sáttmála karls og konu. Tillögurnar báðar voru ræddar á Kirkjuþingi á mánudag og vísað til allsherjanefndar.

Síðasti dagur Kirkjuþings hófst nú klukkan níu og á dagskrá er meðal annars tillaga biskups um staðfesta samvist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×