Jón Ásgeir fékk þriggja mánaða dóm Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 3. maí 2007 19:28
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa útbúið tilhæfislausan kreditreikning í bókhaldi Baugs sumarið 2001. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, fékk níu mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir bókhaldsbrot. Jón Ásgeir Jóhannesson var sakfelldur fyrir bókhaldsbrot. Brot hans fellst í því að hafa látið Jón Gerald Sullenberger gefa út rangan og tilhæfislausan kreditreikning frá Nordica og færa hann í bókhald Baugs sumarið 2001. Reikningurinn hljóðaði upp á 62 milljónir króna og var í bókhaldinu talinn til tekna. Jón Ásgeir var aðeins sakfelldur fyrir þennan lið ákærunnar en alls var ákæra setts saksóknara í nítján liðum. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, var einnig sakfelldur fyrir þátt sinni í að reikningurinn var færður inn í bókhald Baugs. Jón Gerald var einnig ákærður í þessum ákærulið en ákærunni á hendur honum var vísað frá þar sem hann naut ekki réttinda sakbornings við lögreglurannsókn málsins líkt og lög gera ráð fyrir. Alls var Tryggvi sakfelldur í fjórum ákæruliðum. Tryggvi var dæmdur fyrir bókhaldsbrot samkvæmt 14. ákærulið sem laut að sölu á hlutabréfum í Arcadia til Kaupþings en kaupin áttu sér ekki stað. Hann var einnig sakfelldur fyrir að hafa látið færa tilhæfulausa kredityfirlýsingu frá færeyska félaginu SMS í bókhald Baugs og fyrir tilhæfulausa bókhalsfærslu sem snéri að sölu á hlutabréfum til Kaupþings upp á 330 milljónir króna. Dómari vísaði alls tíu ákæruliðum frá en þar var meðal annars ákært fyrir brot á hlutafélagalögum með meintum ólöglegum lánveitingum. Á meðal þeirra brota sem þeir Tryggvi og Jón Ásgeir voru sýknaðir af er meintur fjárdráttur þeirra til að fjármagna skemmtibátinn Thee Viking.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Staðfesta rúmlega áttatíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Sjá meira