Robbie nýr tengdasonur Íslands 11. júlí 2006 12:00 Robbie Williams Söngvarinn heimsfrægi heimsótti eitt sinn Ísland en líkaði ekki vistin. Nú hefur hann náð sér í íslenska kærustu ef marka má danska fjölmiðla.
Breski söngvarinn Robbie Williams er nýjasti tengdasonur Íslands, ef marka má danska Ekstra blaðið. Söngvarinn heimsfrægi hélt tónleika í Parken í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn var og lýsti þar yfir aðdáun sinni á rauðhærðri stúlku sem hann hafði kynnst á bar í Kaupmannahöfn. Samkvæmt Ekstra blaðinu er um að ræða Snædísi Guðnadóttur, 25 ára fjármálastjóra, sem búsett hefur verið í Danmörku um árabil. Tónleikar Robbies í Kaupmannahöfn vöktu mikla athygli þarlendra fjölmiðla, enda sóttu tæplega fimmtíu þúsund manns þá. Það eru samt ekki síst þau orð sem Robbie lét falla um Snædísi á tónleikunum sem hafa vakið athygli: "Rauðhærða stúlkan sem ég hitti á barnum var virkilega sæt." Samband Snædísar og Robbies hefur meira að segja ratað á forsíður sumra dagblaða þar í landi og þá er Snædís gjarnan nefnd Rauðhettan hans Robbies. Snædís vill sem minnst tala um málið við danska fjölmiðla og gefur lítið út á þau fallegu orð sem Robbie lét falla um hana. "Ég var ekki á tónleikunum, svo ég veit ekki hvað fór þar fram. En ég hef engan áhuga á að tala um það sem gerðist," hefur Ekstra blaðið eftir Snædísi. Samkvæmt dönskum fjölmiðlum átti parið rómantískt kvöld á barnum á Skt. Petris hótelinu, sem Robbie dvaldi á, daginn fyrir tónleikana. Snædís virðist þó ekki eina stúlkan sem Robbie hafði áhuga á í Kaupmannahöfn, því samkvæmt Ekstra blaðinu var útsendari á vegum Robbie fyrir utan Parken og bað danskar stúlkur um símanúmer þeirra fyrir söngvarann. Útsendaranum varð nokkuð ágengt en það er alls óvíst að Robbie hafi hringt í stúlkurnar þar sem hann hefur átt við smávægileg veikindi að stríða upp á síðkastið.
Menning Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira