Bláir bossanova mánudagar 11. júlí 2006 10:00 Frönsku listaspírurnar í Nouvelle Vague halda áfram að flytja uppáhalds nýbylgjuslagarana sína í seiðandi bossanova útgáfum. Í þetta skiptið verða New Order, Blondie, Buzzcocks og Billy Idol m.a. fyrir barðinu. Hreint afbragð frá upphafi til enda.
Uppáhalds bossanova hljómsveit allra kaffihúsaeigenda, Nouvelle Vague, snýr aftur með fleiri indí slagara í farteskinu. Þessar frönsku listaspírur velja lögin jafn vandlega og síðast og halda áfram að skella gömlum nýbylgjulögum í seiðandi bossanova búning. Ég held að það hljóti að vera gefið mál að þessi plata eigi eftir að hljóma á vel völdum kaffihúsum í bænum á næstunni. Hér er m.a. að finna afbragðs útgáfur af The Killing Moon eftir Echo and the Bunnymen, Dancing With Myself sem Billy Idol söng með Generation X, Heart of Glass eftir Blondie, Eydís-slagarann Fade to Grey eftir Visage, Blue Monday eftir New Order og hið drungalega meistarastykki Bela Lugosi"s Dead eftir Bauhaus. Þetta hljómar bara allt mjög svipað og síðast, nema hvað að nú eru önnur lög á ferðinni. Fuglasöngur og önnur umhverfishljóð hljóma undir lögunum, sem gefur þeim öllum aukið sólskin. Þetta er eins mikil sumartónlist og getur orðið. Lögin eru svo sungin á jafn kynæsandi hátt og áður. Mikill andadráttur með hverju orði. Þegar maður svo heyrir þennan ýkta franska hreim hjá stúlkunum sér maður þær strax fyrir sér í frönskum þernubúningum. Eða er það kannski bara ég? Það er reyndar einhver gæi að syngja með sveitinni á þessari plötu. Sá heitir Gerald Toto, hljómar alveg eins og stelpa og syngur Yazoo slagarann Don"t Go listavel. Önnur ný stúlka í hópnum heitir Silja, hún er ekki íslensk svo ég viti. Síðasta plata sveitarinnar seldist í rúmum tvö hundruð þúsund eintökum um heim allan, og sveitin hefur verið á stöðugu tónleikaferðalagi síðan hún sló í gegn með útgáfu sinni af Love Will Tear Us Apart eftir Joy Division. Þeim líkar vinsældirnar greinilega vel. Þau eru iðin við að stilla öllum hópnum upp fyrir tískublöðin í glansmyndatökur og eitthvað þykir mér lagavalið hér poppaðra en áður. Það er auðvitað bara hið besta mál. Þetta er líka tónlist sem ætti að höfða til fáránlega breiðs hóps fólks og ég get ekki ímyndað mér að ég eigi nokkurn tíma eftir að fá leið á þessu.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira