Innlent

Kæra veglagningu um námasvæði

Ein kæra barst vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs Suðurstrandarvegar milli Þorlákshafnar og Grindavíkur. Stofnunin gaf úrskurð sinn í lok maí og rann kærufrestur út 2. júlí sl. Þeir sem kæra úrskurðinn eru eigendur jarðarinnar Hrauns í Grindavík, en þar er stundaður námarekstur í Hraunsnámum. Jarðeigendur vilja að vegstæðinu verði breytt þannig að vegurinn liggi ekki um Hraunslandið og námasvæðið, enda myndi hann, að þeirra áliti, setja námureksturinn í uppnám. Að öðrum kosti er þess krafist að úrskurður Skipulagsstofnunar verði felldur úr gildi í heild sinni. Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að fyrsti áfangi Suðurstrandarvegar væri í raun tilbúinn í útboð um leið og lokið væri umfjöllun og kærumálum á vettvangi Skipulagsstofnunar. Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, bjóst við að kæra landeigenda í Hrauni bærist Vegagerðinni á næstu dögum til umsagnar. "Það er nú ekki meiningin að skerða neitt möguleikana til efnistöku þarna í Hraunslandinu," sagði hann og bjóst við að hægt yrði að ná lendingu í málinu tiltölulega fljótt. Hann segir stefnt að því að bjóða út fyrsta áfanga Suðurstrandarvegar undir lok árs, en það er vegspottinn frá Grindavík um Hraunsland og yfir að Ísólfsskála. "Þá er komið yfir á jafnlendi aftur hinum megin og ætti framkvæmdin að koma vel að notum við að halda veginum opnum lengur en hægt hefur verið hingað til," sagði hann. Í úrskurði Skipulagsstofnunar frá því í maílok er fallist á lagningu vegarins með ákveðnum skilyrðum, svo sem um samráð við Umhverfisstofnun um endanlega legu á ákveðnum köflum. Úttekt Skipulagsstofnunar var viðamikil og tók t.d. bæði til mögulegra áhrifa á fornminjar og áhrifa á náttúrufar, svo sem á fuglalíf. Vegarins hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu síðustu ár, en horft er til þess að með lagningu vegarins verði Suðurlandið og Suðurnesin orðin eitt atvinnusvæði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×