Forstöðumanni verði vikið frá 13. október 2005 14:24
Hjón sem reka meðferðarheimilið Torfastaði krefjast þess að félagsmálaráðherra víki forstöðumanni Barnaverndarstofu úr starfi vegna aðkomu hans að meintu kynferðisbrotamáli gagnvart stúlku sem var á heimilinu. Ríkissaksóknari hefur vísað frá kæru á hendur syni hjónanna sem var sakaður um brotin. Forstöðumaður Torfastaða, Drífa Kristjánsdóttir, hefur óskað formlega eftir því að ráðherra rannsaki embættisfærslur Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu, vegna ásakana sem fram komu á son hennar í febrúar á þessu ári. Skömmu áður hafði þjónustusamningi Torfastaða við ríkið verið sagt upp og ástæðurnar sem fyrir því voru gefnar var óvild Braga í garð meðferðarheimilisins en fyrir lá að ríkisendurskoðun fengi það mál til skoðunar. Í febrúar lagði stúlka, sem var í vistun á Torfastöðum, fram sakir á son Drífu um kynferðisofbeldi sem ríkissaksóknari vísaði frá. Drífa heldur því fram að málsmeðferð Barnaverndarstofu hafi verið með allt öðrum hætti en áður hafi gerst í sambærilegum málum og að strax virðist hafa legið fyrir að sonur hennar yrði kærður til lögreglu. Bragi Guðbrandsson hafði yfirstjórn með málsmeðferð Barnaverndarstofu og segir Drífa hann hafa hringt, eða látið starfsfólk sitt hringja, í fjóra eða fimm skjólstæðinga heimilisins og beðið þá um að staðfesta framburð stúlkunnar þess efnis að um fleiri stúlkur en hana væri að ræða. Hún segir hann jafnframt ekki hafa látið þau hjónin vita um málið fyrr en forrannsókn Barnaverndarstofu var lokið. Vegna þeirra ávirðinga sem hjónin að Torfastöðum höfðu áður borið á forstöðumann Barnaverndarstofu telja þau að hann hefði átt að víkja úr embætti á meðan ásakanir á hendur syni þeirra væru rannsakaðar. Þau krefjast þess að Braga verði vikið úr starfi og sæti áminningu vegna framgöngu sinnar. Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Sjá meira