Innlent

Gáfu Mæðrastyrksnefnd 1.000 krónur fyrir hvern lögreglumann

Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar.

Landssamband lögreglumanna hefur gefið Mæðrastyrksnefnd 709 þúsund krónur, eða þúsund krónur fyrir hvern félaga sambandsins.

Þá hefur Síldarvinnslan í Neskaupstað gefið nefndinni fjögur bretti, eða rúm fjögur tonn, af sjófrystum ýsuflökum, með þeim orðum að mikilvægt sé að við stöndum vörð um hvert annað á þeim tímum, sem við erum að ganga í gegnum. Flytjandi flytur ýsuna svo endurgjaldslaust til Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×