Innlent

Ártúnsbrekka opin á ný

Búið er að opna fyrir alla umferð um Ártúnsbrekku til austurs en þar fór fullfermdur vörubíll á hliðina um hádegisbil í dag.

Miklar umferðartafir urðu á meðan unnið var að því að fjarlægja bílinn. Tilkynnt var um slysið um klukkan kortér yfir tólf. Bílnum var ekið af afrein frá Reykjanesbraut inn á Vesturlandsveg með þeim afleiðingum að hann valt en lögregla rannsakar nú hvers vegna þannig fór. Ökumann flutningabílsins mun hafa sakað lítið en hann kvartaði þó undan eymslum í baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×