Harma verkfallsboðun flugumferðarstjóra 18. júní 2008 17:59
Stjórn Flugstoða ohf. harmar mjög verkfallsboðun Félags íslenskra flugumferðastjóra (FÍF) og vonar að til verkfalls þurfi ekki að koma. Samtök atvinnulífsins (SA) eru viðsemjendur FÍF í þessari kjaradeilu, en samningafundir SA og FÍF hófust um síðustu áramót. Þetta segir í yfirlýsingu frá Flugstoðum vegna málsins. Þar segir ennfremur: „Einungis 52,7% flugumferðastjóra sem starfa hjá Flugstoðum tók þátt í atkvæðagreiðslunni um þessi boðuðu verkföll, eða 39 flugumferðastjórar. Þau 20 verkföll sem hafa verið boðuð eru á háannatíma ferðalaga til og frá landinu og innanlands. Þau hafa mikil áhrif á ferðalög Íslendinga sem og erlendra ferðamanna sem heimsækja landið. Ljóst er að flugrekendur munu bera mikinn skaða af þessum aðgerðum, en rekstrarumhverfi þeirra hefur ekki í annan tíma verið verra en um þessar mundir, vegna síhækkandi eldsneytisverðs og erfiðleika í efnahagslífi, bæði hérlendis og erlendis. Skaði ferðaþjónustuaðila um land allt verður einnig verulegur, komi til verkfalla. Ljóst er að fyrirhuguð verkföll flugumferðastjóra munu leiða af sér seinkanir á flugi í fleiri klukkustundir en það setur allt tengiflug í uppnám. Ferðamaður sem missir af tengiflugi ber þann skaða sjáfur. Aðgerðir flugumferðastjóra geta því leitt til ómælds skaða fyrir íslenska flugrekstraraðila, ferðaþjónustuna og almenning. Þær munu einnig hafa mjög neikvæð áhrif á skuldbindingar Íslendinga gagnvart erlendum flugfélögum og Alþjóðaflugmálastofnuninni vegna þess hlutverks, sem Íslendingum hefur verið falið við stjórnun flugumferðar á Norður - Atlantshafi. Stjórn Flugstoða skorar á flugumferðastjóra að endurskoða ákvörðun sína hvað varðar boðun þessara 20 verkfalla. Samningaviðræður milli FÍF og SA hófust um síðustu áramót og hefur flugumferðastjórum verið boðinn skammtímasamningur í þeim anda sem flugstéttir hafa þegar samþykkt, einnig samningar til lengri tíma, allt að fjögurra ára. Flugumferðarstjórar hafa hafnað öllum tillögum SA, þótt samtökin hafi gengið eins langt í tilboðum sínum og þau hafa talið mögulegt. Skaði af boðuðum verkföllum flugumferðastjóra getur orðið varanlegur fyrir íslenskt samfélag og ímynd lands og þjóðar."
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira