Innlent

Íslensk börn verða fyrr sjálfstæð en jafnaldrar á Vesturlöndum

MYND/GVA

Íslensk börn og unglingar verða fyrr sjálfstæð en jafnaldrar þeirra á Vesturlöndum og vinahópurinn öðlast snemma aukið gildi á kostnað fjölskyldunnar.

Þetta er meðal fyrstu niðurstaðna í alþjóðlegri rannsókn um heilsu og lífskjör skólabarna sem kynnt var á Akureyri í dag. Háskólinn þar á bæ vinnur að rannsókninni hér á landi.

Rannsóknin sýnir einnig að íslenskum börnum líkar betur í skólanum en börnum víðast hvar annars staðar. „Varðandi líðan barna í skólum, þá finnst mér sérstaklega ánægjulegt að sjá að íslenskum skólabörnum virðist líða vel í skólanum og að sú ánægja helst nokkuð stöðug eftir auknum aldri, ólíkt því sem gerist víðast hvar annars staðar," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri.

Rannsóknin sýnir einnig að íslenskir foreldrar hafa minna eftirlit með börnum sínum en samanburðarþjóðrnar. Íslensk börn drekka áfengi að jafnaði sjaldnar en hafa álíka oft orðið drukkin og jafnaldrar þeirra á meginlandi Evrópu.

Íslenskar unglingsstúlkur byrja hins vegar snemma að stunda kynlíf með sér eldri strákum en hlutfall íslenskra unglingsstráka sem hafa sofið hjá við fimmtán ára aldur er hins vegar nálægt meðaltali stráka á Vesturlöndum.

Margrét Kristín Helgadóttir, formaður samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrarbæjar, telur sláandi að Ísland sé í 3. sæti hvað varðar 15 ára stelpur sem hafa sofið hjá. „Maður spyr sig ósjálfrátt hvað hafi legið að baki þeirri ákvörðun að byrja að stunda kynlíf; var það vegna þrýstings, vegna áfengisölvunar eða að vel ígrundaðri ákvörðun beggja aðila? Þetta er eitthvað sem að við þurfum að skoða betur með það að markmiði að efla kynvitund ungmenna - að þau viti hvað þau séu að fara út í og þekki ábyrgðina á bak við slíka ákvörðun," er haft eftir henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×