Hegðun Isavia starfsmannsins telst ekki kynferðisleg áreitni Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. febrúar 2012 17:04
Isavia, sem rekur flugvelli á Íslandi, var í Hæstarétti í dag sýknað af kröfu konu sem vann hjá fyrirtækinu vegna vangoldinna launa auk miskabóta vegna kynferðislegrar áreitni sem hún kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu yfirmanns síns. Konan byggði kröfu sína á því að viðbrögð fyrirtækisins hefðu ekki verið í samræmi við alvarleika málsins og breytingar hafi verið gerðar á starfi hennar svo að henni hafi verið gert ókleift að sinna því. Hæstiréttur hafnaði því að hegðun yfirmannsins gæti fallið undir skilgreiningu hugtaksins kynferðisleg áreitni samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Hegðun mannsins mun hafa falist í því að fara nakinn í heitan pott í sumarbústað í vinnuferð sem þau fóru saman ásamt þriðja aðila. Þá taldi rétturinn með engu móti hafa verið sýnt fram á að konan hafi verið beitt óréttlæti í starfi með tilliti til starfsöryggis og starfskjara. Konan hefði ekki sýnt fram á að hún ætti rétt til greiðslu launa fyrir það tímabil sem hún kaus að mæta ekki til vinnu eða að framkoma fyrirtækisins í hennar garð hafi á einhvern hátt falið í sér ólögmæta meingerð. Var Isavia því sýknað af kröfum konunnar. Héraðsdómur Reykjaness hafði dæmt Isavia til að greiða konunni tæpar 1800 þúsund krónur í ógreidd laun og bætur en Hæstiréttur sneri dómnum við.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira