Bíó og sjónvarp

Stjörnum prýdd söngleikjamynd með Taylor Swift í fararbroddi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Taylor Swift er meðal þeirra fjölmörgu stjarna sem fer með hlutverk í myndinni.
Taylor Swift er meðal þeirra fjölmörgu stjarna sem fer með hlutverk í myndinni. Vísir/Getty
Væntanleg er ný söngleikjamynd af dýrari gerðinni. Öllu er til tjaldað í framleiðslu á væntanlegri kvikmynd byggðri á söngleiknum sívinsæla Cats.

Í myndbandi sem kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Universal Studios birti á YouTube í gær er skyggnst á bak við tjöldin við framleiðslu myndarinnar, sem leikstýrt er af Tom Hooper. Hann er enginn nýgræðingur þegar kemur að leikstjórn en meðal verka hans eru verðlaunamyndir á borð við The Danish Girl, Les Misérables, og The King‘s Speech.

Þá er leikarahópurinn heldur ekkert slor, en með hlutverk í myndinni fer fríður hópur frægðarmenna. Þar er vert að nefna nöfn á borð við Taylor Swift, söngkonu og tekjuhæstu stjörnu síðustu tólf mánaða, spjallþáttastjórnandann James Corden, tónlistarfólkið Jennifer Hudson og Jason Derulo, auk leikaranna Judi Dench, Ian McKellen, Idris Elba og Rebel Wilson. Sannarlega valinn maður í hverju rúmi.

Í opinberri yfirlýsingu frá Universal segir að myndin komi til með að „endurskapa söngleikinn fyrir nýja kynslíð með stórkostlegri framleiðslu, nýjustu tækni, og dansstílum frá ballett til samtímadans, hip-hop til djass, götudansi til stepps.“

Samkvæmt vef IMDb kemur myndin í kvikmyndahús rétt fyrir næstu jól, 20. desember 2019.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×