Hafa skorað 35 mörk í átta leikjum gegn Watford síðan Guardiola tók við Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2019 19:00 Bernardo Silva, Sergio Agüero og David Silva skoruðu allir gegn Watford á laugardaginn var. vísir/getty
Síðan Pep Guardiola tók við Manchester City hefur liðið haft sérstaklega gaman að því að níðast á Watford. Á laugardaginn rúllaði City yfir Watford, 8-0. Þetta er næststærsti sigur liðs í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Metið er í eigu Manchester United sem vann Ipswich Town, 9-0, 1995. City og Watford mættust í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á síðasta tímabili. City vann þá 6-0 sigur. Síðan Guardiola tók við City sumarið 2016 hefur liðið unnið alla átta leikina gegn Watford. Í þessum átta leikjum hefur City skorað 35 mörk, eða 4,4 mörk að meðaltali í leik. Watford hefur aftur á móti aðeins skorað þrjú mörk í leikjunum átta. City hefur gengið afar vel með Watford undanfarin ár. Fara þarf aftur til ársins 1989 til að finna síðasta sigur Watford á City. Sergio Agüero kann sérstaklega vel við sig gegn Watford en hann hefur skorað ellefu mörk í átta leikjum gegn Lundúnaliðinu, þ.á.m. tvær þrennur. City er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 13 stig, fimm stigum á eftir toppliði Liverpool. Watford er með tvö stig á botni deildarinnar.
Enski boltinn Tengdar fréttir Real Madrid vill fá Sterling næsta sumar Spænska stórliðið vill kaupa Raheem Sterling næsta sumar. 23. september 2019 15:45 Liverpool greiddi Manchester City milljón punda vegna njósna Liverpool greiddi Manchester City eina milljón punda árið 2013 vegna njósnamáls. The Times greinir frá þessu í dag. 21. september 2019 09:30 Man. City búið að skora jafnmörg mörk í sex leikjum og Huddersfield gerði allt síðasta tímabil Manchester City gekk frá Watford fyrr í dag er liðin mættust í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en ensku meistararnir skoruðu átta mörk. 21. september 2019 19:00 Meistararnir niðurlægðu Watford City setti í fimmta gír í dag. 21. september 2019 16:00 Fékk á sig átta mörk gegn Man. City um helgina: „Styttist í að þeir skori tíu í sama leiknum“ Það var nóg að gera hjá Ben Foster um helgina. 23. september 2019 13:30 Bernardo Silva gerði grín að Benjamin Mendy á Twitter en gæti verið í vandræðum Færsla á Twitter gæti sent Bernardo Silva í leikbann. 23. september 2019 11:00 Guardiola viss um að Arteta muni taka við af honum Pep Guardiola segist viss um það að Mikel Arteta muni taka við af honum sem knattspyrnustjóri Manchester City þegar hann ákveður að hætta. 21. september 2019 11:30 Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira
Real Madrid vill fá Sterling næsta sumar Spænska stórliðið vill kaupa Raheem Sterling næsta sumar. 23. september 2019 15:45
Liverpool greiddi Manchester City milljón punda vegna njósna Liverpool greiddi Manchester City eina milljón punda árið 2013 vegna njósnamáls. The Times greinir frá þessu í dag. 21. september 2019 09:30
Man. City búið að skora jafnmörg mörk í sex leikjum og Huddersfield gerði allt síðasta tímabil Manchester City gekk frá Watford fyrr í dag er liðin mættust í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en ensku meistararnir skoruðu átta mörk. 21. september 2019 19:00
Fékk á sig átta mörk gegn Man. City um helgina: „Styttist í að þeir skori tíu í sama leiknum“ Það var nóg að gera hjá Ben Foster um helgina. 23. september 2019 13:30
Bernardo Silva gerði grín að Benjamin Mendy á Twitter en gæti verið í vandræðum Færsla á Twitter gæti sent Bernardo Silva í leikbann. 23. september 2019 11:00
Guardiola viss um að Arteta muni taka við af honum Pep Guardiola segist viss um það að Mikel Arteta muni taka við af honum sem knattspyrnustjóri Manchester City þegar hann ákveður að hætta. 21. september 2019 11:30