Enski boltinn

Slátrarinn baðst af­sökunar en fær sekt

Sindri Sverrisson skrifar
Margir hafa gagnrýnt Lisandro Martínez fyrir ummælin í Madrid á þriðjudaginn á meðan aðrir hafa fagnað þeim.
Margir hafa gagnrýnt Lisandro Martínez fyrir ummælin í Madrid á þriðjudaginn á meðan aðrir hafa fagnað þeim. Getty/Florencia Tan Jun

Lisandro Martínez fundaði með stjórnendum Manchester United og þjálfaranum Michael Carrick í dag og bað þá afsökunar á ummælum sínum eftir tapið gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld.

Samkvæmt frétt BBC fékk Martínez sekt vegna hegðunar sinnar í Madrid á þriðjudaginn. The Athletic hefur sömuleiðis eftir heimildarmönnum hjá United að nú sé málinu í raun lokið.

Flest bendir því til þess að Martínez, eða Slátrarinn eins og hann er kallaður, verði áfram í leikmannahópi Carricks á sunnudaginn þegar United mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni en Carrick mun væntanlega svara því á blaðamannafundi á morgun.

Martínez sagði United hafa sýnt metnaðarleysi í leikmannamálum í sumar en félagið hafði hægt um sig í leikmannakaupum og sótti til að mynda hvorki framherja né vinstri bakvörð þrátt fyrir augljósa þörf. 

Liðið kom sér aftur í Meistaradeild Evrópu með árangri síðustu leiktíðar en Martínez sagði úrslitin gegn Atlético endurspegla félagið og að hann hefði „búist við meiru“ frá Jason Wilcox, yfirmanni knattspyrnumála.

Eins og fyrr segir bað Martínez stjórnendur afsökunar í dag en þetta staðfesti hann í færslu á Instagram í kvöld.

„Í dag hitti ég stjórnendur félagsins og knattspyrnustjórann. Þetta var mjög jákvætt samtal þar sem við gátum skipst á skoðunum og rætt opinskátt um það sem gerðist eftir leikinn á þriðjudaginn.

Allir vita að ég er ástríðufull manneskja og að ég lifi fyrir fótboltann af miklum krafti. Gremjan yfir tapinu varð til þess að ég lét tilfinningar mínar í ljós á stað og stund sem voru ef til vill ekki réttar, og á því vil ég biðjast afsökunar,“ skrifaði Martínez.

Samningur miðvarðarins við United rennur út eftir þessa leiktíð. BBC segir að þó að litið sé svo á sem að málinu frá því á þriðjudagskvöld sé lokið þá hafi stjórnendur United ekki gert upp við sig hvort þeir vilji nýta sér réttinn sem þeir hafa til að framlengja samninginn um eitt ár.

United hefur átt afar erfitt uppdráttar á leiktíðinni og er aðeins með sex stig í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, eftir sex umferðir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×