Bíó og sjónvarp

Búast við miklu af andlega veikum forsætisráðherra

Birgir Olgeirsson skrifar
Ólafur Darri leikur aðalhlutverkið í þessum þáttum.
Ólafur Darri leikur aðalhlutverkið í þessum þáttum. FBL/Sigtryggur Ari
Breska dreifingarfyrirtækið Cineflix hefur tryggt sér réttinn að íslensku þáttaröðinni Forsætisráðherranum með Ólafi Darra Ólafssyni í aðalhlutverki.

Þáttaröðin er framleidd af Sagafilm en hún mun segja frá því þegar forsætisráðherra Íslands greinist með geðhvarfasýki. Aðstoðarmaður hans þarf að leggja bæði stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni.

Leikstjórar þáttanna eru Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnarsson en með önnur hlutverk fara Blær Jóhannsdóttir, Aníta Briem, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Jóhann Sigurðsson. Handritshöfundar eru  Birkir Blær Ingólfsson, Björg Magnúsdóttir og Jónas Margeir Ingólfsson.

Þáttaröðin hefur hlotið þrjá handritastyrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, samtals 1,8 milljónir króna, og vilyrði fyrir framleiðslustyrk fyrir árið 2019 upp á 50 milljónir króna.

Ólafur Darri mun leika forsætisráðherrann en fjallað er um þáttaröðina á vef Variety í dag þar sem rætt er við Hilmar Sigurðsson, forstjóra Sagafilm.

Hilmar segir þokka og persónutöfra Ólafs Darra nýtast vel til að túlka þann flókna karakter sem forsætisráðherrann er og hlakkar hann til að sjá hvernig áhorfendur munu taka í þennan óvenjulega karakter.

Um er að ræða átta þætti sem meðal annars verða sýndir á RÚV en rætt er við Julein Leroux sem starfar fyrir Cineflix á vef Variety. Hann vill meina að búast megi við að Ráðherrann verði einn af bestu Norðurlandaþáttum síðastliðinna ára. Leroux segir þáttaröðina endurspegla þann nýja veruleika sem popúlismi hefur skapað. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×