Innlent

Vill að allsherjarnefnd fundi tafarlaust vegna brottvísana en er ekki bjartsýnn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. Vísir/vilhelm
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata óskaði eftir því nú síðdegis að allsherjar- og menntamálanefnd fundi hið fyrsta um málefni barna sem sem senda á úr landi til Grikklands og Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Helgi segist þó ekki bjartsýnn á að nefndin komi saman í tæka tíð.

Helgi segir í fundarbeiðni sem hann sendi allsherjar- og menntmálanefnd, auk fjölmiðla, í dag að af fréttaflutningi að dæma hafi hagsmunir barna ekki notið þess forgangs við ákvarðanatöku sem þau hafa rétt á samkvæmt lögum og barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Hann óski eftir því að nefndin boði einnig á fund sinn Umboðsmann barna, UNICEF, Útlendingastofnun, Kærunefnd útlendingamála og dómsmálaráðherra.

Helgi segir í samtali við fréttastofu að þar sem brottvísun sé yfirvofandi sé brýn þörf á því að ráðherra svari fyrir aðgerðir undirstofnanna sinna í málaflokknum.

„Mér finnst mikilvægt að Alþingi fái svör frá dómsmálaráðherra en líka öðrum stofnunum og undirstofnunum hans, ásamt þeim stofnunum sem varða réttindi barna til að varpa ljósi á það hvernig það eigi að geta staðist að hagsmunir barna séu hafðir að leiðarljósi, og að þeir hagsmunir njóti forgangs við þær ákvarðanir eins og þessar sem við höfum orðið vitni að í fjölmiðlum.“

Ertu bjartsýnn á að nefndin komi saman í tæka tíð?

„Ég er ekki bjartsýnn á neitt í þessum málaflokki í náinni framtíð, nei, því miður. Það er ekki tilefni til þess miðað við það hvernig stjórnvöld hafa hagað sér,“ segir Helgi.

Ómar Örn Magnússon, kennari við Hagaskóla, sem hefur kennt Zainab í vetur segir að það sé alveg ljóst að krakkanna Zainab og Amir bíði ömurlegar aðstæður í Grikklandi.Vísir
Mótmæli vegna fyrirhugaðrar brottvísunar tveggja afganskra fjölskyldna hófust við Hallgrímskirkju klukkan fimm, þaðan sem gengið verður á Austurvöll.

Annars vegar er um að ræða Sarwari feðgana, föðurinn Asadullah og synina Said Mahdi og Said Ali Akbar. Feðgarnir komu hingað til lands síðasta haust en Útlendingastofnun úrskurðaði í desember að mál þeirra yrði ekki tekið til efnislegrar meðferðar.

Hins vegar er um að ræða Zainab Safari, nemanda við Hagaskóla, bróður hennar og móður. Skólastjóri Hagaskóla er meðal þeirra sem hafa sagt nemendur og kennara harmi slegna.

Heimildir fréttastofu herma að fjölskyldunum verði ekki vísað úr landi á næstu dögum. verður ekki vísað úr landi á næstu dögum. Mál þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum.


Tengdar fréttir

Krefjast endurupptöku í máli afgönsku feðganna

Það væri andstætt lögum og alþjóðlegum skuldbindingum ef sú afstaða yrði tekin að kanna ekki frekar mat sérfræðilækna á barna- og unglingageðdeild BUGL á heilsu drengsins að sögn Magnúsar Norðdahl, lögfræðings feðganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×