Innlent

Hóf slátt þegar spáð var sólskini en þá hélt bara áfram að rigna

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ólafur Eggertsson í viðtali á Þorvaldseyri í dag.
Ólafur Eggertsson í viðtali á Þorvaldseyri í dag. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Eftir stöðuga rigningatíð sunnanlands sá bóndinn á Þorvaldseyri loksins fram á sólarglennu og hóf því heyskap, - en fékk þá yfir sig skúrademburnar. Hann segist aldrei hafa upplifað annað eins vor, það komi engar uppstyttur. Sýnt var frá heyskap undir Eyjafjöllum í dag í fréttum Stöðvar 2.

Þegar við ókum um Suðurland í skúrunum í dag sáum við hvergi merki þess að bændur væru byrjaðir í heyskap, - nema á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum.

Á Þorvaldseyri í dag. Þar var fyrsta túnið slegið í gær.Stöð 2/Arnar Halldórsson.
„Við vorum að reyna að veðja á spána. Það var verið að lofa okkur smásól í dag og við slógum í gær,” sagði Ólafur Eggertsson bóndi. 

„Og svo rignir núna. Og við erum að reyna að sóða þessu saman því það er rigning á morgun. Þannig að, hvað á gera? Drífa þetta bara í rúllur, - það bara verður náttúrlega heldur þungt, en það er ekkert annað að hafa,” segir Ólafur. 

Hann kvartar ekki undan grasleysi og segir grasið svo vel sprottið að það sé farið að leggjast. 

„En þetta hefur enginn hiti verið,” segir hann og nefnir að núna í júní hafi tveir dagar farið yfir tíu stig og í nótt hafi verið þrjár gráður. 

„Og meðan þessi kuldi er í loftinu, þá bara skúrar. Það er bara svoleiðis.”

Ólafur bóndi rakar saman heyið með múgavélinni í skúrunum undir Eyjafjöllum í dag.Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Hann býst þó við að um síðir stytti upp og kveðst ekki svartsýnn um sumarið, enda sé bara miður júní. Góðu kaflarnir muni koma. 

„En þetta er bara lotterí.” 

Bóndinn kveðst hins vegar ekki muna eftir eins vætusömu vori. 

„Ég man ekki eftir svona og er nú búinn að búa í nokkuð mörg ár. Man aldrei eftir svona vori. Það hafa komið rigningakaflar en að það skuli ekki koma uppstyttur almennilegar á milli, það er alveg ótrúlegt,” segir Ólafur Eggertsson.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×