Messan: Charlie Adam of hægur til að fá víti Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. febrúar 2018 13:30
Það var mikið um læti á bet365 vellinum í Stoke um helgina þegar heimamenn fengu nokkuð umdeilda vítaspyrnu og rifust um hver ætti að fá að taka spyrnuna. Ríkharð Óskar Guðnason tók atvikið fyrir í Messunni í gær með sérfræðingum sínum Bjarna Guðjónssyni og Ríkharði Daðasyni. „Við skulum vona að þeir fari að dæma á þetta víti, þá fáum við fullt fullt af vítum,“ sagði Bjarni þegar Rikki spurði hvort þetta ætti yfir höfuð að vera vítaspyrna. Pele krækti í vítaspyrnuna og vildi fá að taka hana sjálfur. Hann er hins vegar ekki vítaskytta liðsins heldur er það Charlie Adam og hann fór á punktinn. Adam tók spyrnuna, lét verja frá sér og var svo ekki nógu snöggur í frákastið og var boltinn tæklaður í burtu frá honum. „Afhverju er hann svona lengi í frákastið,“ kallar Rikki, stórhneykslaður á Adam þarna. Bjarni greip þá fram í og sagði að það væri klárt víti og rautt spjald á tæklinguna á Adam í frákastinu. „Já ég veit það, en mér finnst bara að hann eigi ekki að fá það því hann er svo lengi. Hann á að vera löngu búinn að henda sér á boltann,“ sagði Rikki og var honum greinilega heitt í hamsi. Þeir gátu þó sammælst á það að líklegast hefði dómarinn einfaldlega ekki þorað að dæma víti í seinna skiptið, nýbúinn að dæma frekar „soft“ vítaspyrnu. Þessa stórskemmtilegu umræðu má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane Sjá meira