Neitaði að borga leigubílinn og veittist að lögreglumönnum Þórdís Valsdóttir skrifar 12. maí 2018 07:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sat ekki auðum höndum í gærkvöld og nótt. Vísir/Vilhelm
Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu rétt fyrir klukkan þrjú í nótt því ölvuð kona neitaði að greiða fargjaldið. Konan brást illa við afskiptum lögreglu og sló og sparkaði til lögreglumanna. Konan var í framhaldinu vistuð í fangageymslu. Samtals voru 112 mál bókuð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Nokkrar tilkynningar bárust um ofurölvi og ósjálfbjarga fólk í miðbænum og aðstoðaði lögreglan fólk við að komast í heimahús. Í einu tilviki reyndist það þó erfitt, en um var að ræða spænskan ferðamann sem gat engan veginn sagt hvar hann gisti. Lögreglan brá á það ráð að vista hann í fangageymslu þar til hann næði áttum. Á níunda tímanum í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ónæðis og áreiti frá erlendum karlmanni. Þegar lögreglan hafði afskipti af manninum kom í ljós að hann hefur ekki landvistarleyfi og var hann því handtekinn og vistaður í fangageymslu. Mál hans verður tekið fyrir í dag. Um hálf þrjú í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála við skemmtistað í miðbænum. Minniháttar áverkar voru á þeim sem í hlut áttu. Sá sem verst lét var handtekinn og vistaður í fangageymslu og við leit á lögreglustöð fundust á honum meint fíkniefni. Tvítug stúlka óskaði eftir aðstoð lögreglu í Austurstræti laust fyrir klukkan þrjú í nótt en þá hafði önnur stúlka ráðist á hana og veitt henni áverka. Lögreglan telur sig vita hver gerandinn er. Þá voru einnig þó nokkrir stöðvaðir af lögreglu vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Frakkar fjölga kjarnavopnum Erlent Gæti orðið flughált síðdegis Innlent Fleiri fréttir Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Sjá meira