Þær hafa vakið mikla athygli á undanförnum misserum fyrir skartgripahönnun sína og flottar Instagram og Facebook síður þar sem þær deila myndum af verkstæði sínu.

„Við ákváðum í upphafi að aðgreina ekki hlutina okkar og vinnum því allar undir Raus merkinu,“ segja þær. „Hönnunarferlið er gríðarlega misjafnt hjá okkur. Stundum mallar hugmyndin í höfðinu í marga mánuði áður en hún kemst í málminn en stundum höfum við valið okkur þema og unnið út frá því bæði sameiginlega og sitt í hvoru lagi.
Við reynum líka að fylgjast með stefnum og straumum í hönnun en líkt og hjá mörgum hönnuðum þá eru það form og litir í náttúru, list og arkitektúr sem kveikja oft fyrstu hugmyndina. Við smíðina sköpum við svo rétta andrúmsloftið með tónlist og á meðan sumir hlutir verða til undir dúndrandi jazzi þá er ein okkar sem vinnur best með glæpasögur í heyrnartólunum. Svo er það einstöku sinnum þannig að maður byrjar með eina hugmynd en í smíðaferlinu þróast hún í eitthvað allt annað og skemmtilegra.“

Beðnar um að lýsa hönnun sinni nota þær orð eins og grófur minimalismi og kvenleg rómantík. Þær höfði til ólíkra hópa og vilji ekki takmarka sig við einn stíl. „Það eru gríðarleg forréttindi að fá að hanna og smíða eftir skapi og árstíð,“ segja þær.

„Einnig er hægt að versla á heimasíðu okkar www.raus.is og verðum við til dæmis með Cyber Monday" á mánudaginn þar sem ein línan okkar verður á góðu tilboði. Á sýningunni í ráðhúsinu núna um helgina verðum við líka með góða afslætti af skarti í jólapakkana."

