Innlent

Efast um réttmæti loftárásanna í Sýrlandi

Sylvía Hall skrifar
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Logi Einarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru gestir þáttarins Sprengisands í dag.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Logi Einarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru gestir þáttarins Sprengisands í dag. Vísir/Stefán/Eyþór/Vilhelm
„Það er mjög mikilvægt að það sé brugðist við með afdráttarlausum hætti þegar er verið að nota efnavopn gegn almennum borgurum“ sagði Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, í viðtali í Sprengisandi í hádeginu.

Jafnframt sagðist hún vera mótfallin loftárásum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands í Sýrlandi þar sem hún telur að hernaðaraðgerðir stuðli ekki að friði og sagði loftárásir ekki hafa leyst neinn vanda í Sýrlandi hingað til.

Rósa Björk, sem var gestur í þættinum ásamt þeim Loga Einarssyni og Silju Dögg Gunnarsdóttur, var ósátt við framgöngu ríkjanna þriggja og gagnrýndi vinnubrögð þjóðhöfðingjanna:

„Ég geri alvarlegar athugasemdir við það að þrír þjóðhöfðingjar taki sig saman og ákveði að ráðast á hernaðarskotmörk í öðru ríki án lýðræðislegrar aðkomu þjóðþinga í þessum ríkjum.“

Hún benti á þá staðreynd að Vinstri græn væri eini stjórnmálaflokkur landsins sem væri andsnúinn veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu (NATO) og sagði að stefna flokksins yrði að vera skýrari í utanríkisstefnu landsins. „Þó svo að við séum inni í þessu hernaðarbandalagi, þá er líka tækifæri fyrir Ísland að koma á framfæri ákveðnum sjónarmiðum“ sagði hún í viðtalinu.

Þá hefur Rósa Björk farið fram fram á að utanríkismálanefnd Alþingis fundi um málið og mun nefndin funda með ráðherra og starfsmönnum utanríkisráðuneytisins í kvöld.

„Ríkisstjórnin verður að tala skýrt í þessu máli og við þurfum að ræða þetta mjög alvarlega"

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að hann vilji forðast hernaðaríhlutun og aðgerðir þjóðanna þriggja í Sýrlandi hafi verið ótímabærar. Hann segir að við sem friðelskandi þjóð ættum að beita okkur fyrir skynsamari lausnum og gagnrýnir að ríkisstjórnin hafi ekki látið utanríkismálanefnd vita .

„Það er líka merkilegt það sem er að gerast hér, að utanríkismálanefnd er ekki látin vita. Hún fær ekki að koma sínum sjónarmiðum á framfæri þannig að ríkisstjórnin verður að tala skýrt í þessu máli og við þurfum að ræða þetta mjög alvarlega“ sagði Logi.

Hann sagði hættu skapast þegar ríki taki einhliða ákvarðanir um árásir án lagalegs grundvallar, það skapaði fordæmi og hættu á að önnur ríki gerðu slíkt hið sama. Stuðningur Íslands við þessar aðgerðir gerði það að verkum að gagnrýni á samskonar aðgerðir yrði ómarktæk.

Búið að liggja í loftinu í langan tíma

Silja Dögg Gunnarsdóttir segir í viðtalinu að hún telji ekki ólíklegt að tímasetning aðgerðanna sé vegna efnavopnaárásarinnar í Douma og það hafi líklega verið dropinn sem fyllti mælinn.

„Þetta er búið að liggja í loftinu í mjög langan tíma og það hafa allir vitað það, líka við í utanríkismálanefnd og fólk sem fylgist með þessu stríði og fréttum af því. Þetta kom kannski ekki á óvart en strangt til tekið er réttari leiðin að fara í gegnum þjóðþingin.“



Frétt uppfærð: Upphaflega stóð að óskað væri eftir fundi í utanríkismálanefnd á þriðjudag, en fundurinn hefur verið boðaður klukkan 20:00 í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×