Eiður Smári borgaði úr eigin vasa til að losna frá Stoke Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. apríl 2018 12:00 Eiður Smári átti ekki sjö dagana sæla hjá Stoke. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, sér mikið eftir þeirri ákvörðun sinni að ganga í raðir Stoke í ensku úrvalsdeildinni árið 2010. Þegar að Eiður var laus allra mála frá Monaco gerði hann eins árs samning við Stoke þar sem Tony Pulis var knattspyrnustjóri. Íslenski framherjinn spilaði aðeins fjóra leiki fyrir Stoke og fór á láni til Fulham seinni hluta tímabilsins. „Stoke var eitt af þeim liðum sem var tilbúið að borga launin mín. Ég var samt mjög efins og sat inn á skrifstofu þangað til fimm mínútur voru þar til að félagaskiptaglugganum var lokað,“ segir Eiður Smári í þáttaröðinni Gudjohnsen sem sýnd er í Sjónvarpi Símans. „Tony Pulis fann að ég var efins og reif mig þá fram á gang og sagði að ég yrði aðalmaðurinn. Ég var það sem liðið þurfti. Hann sannfærði mig um að ég væri gæinn sem hann vantaði í liðið.“ Lítið var að marka orð Pulis því Eiður spilaði 74 mínútur í heildina fyrir Stoke og kom ekkert við sögu frá lokum október og þar til að hann yfirgaf félagið í janúar. „Ég sé mikið eftir þeirri ákvörðun að hafa farið í Stoke. Það hefur ekkert með félagið að gera, það var bara þannig að samband mitt við þjálfarann dó eftir korter," segir Eiður Smári. „Ég beið eftir því að komast heim. Ég fór yfir jólatímann og ræddi við hann um lítinn spiltíma. Hann sagði að þetta hefði ekki virkað. Ég stóð upp og barði í borðið.“ „Þetta er í fyrsta sinn á æfinni þar sem ég hef hótað því að hætta að mæta. Ég sagðist ætla að hætta að spila varaliðsleiki og ætlaði ekki að mæta æfingar. Ég borgaði sjálfur pening til Stoke til þess að komast í burtu,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen.
Enski boltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Fótbolti Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Fótbolti Fleiri fréttir Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Sjá meira