Kane meiddist í auðveldum sigri Spurs Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. mars 2018 18:00 Dele Alli skoraði fyrsta mark Tottenham í dag vísir/getty Tottenham fór upp fyrir Liverpool í þriðja sæti ensku úrvaldeildarinnar með sigri á Bournemouth í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn gæti hins vegar reynst dýrkeyptur því Harry Kane fór meiddur af velli snemma leiks. Heimamenn byrjuðu leikinn frábærlega með marki strax á 8. mínútu. Junior Stanislas hafði skotið í slánna nokkrum mínútum áður en fékk tækifæri til að bæta það upp og gerði það með öruggri afgreiðslu eftir fyrirgjöf Adam Smith. Harry Kane kom boltanum í netið eftir hálftíma leik en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Kane stóð ekki upp aftur eftir markið, þar sem hann lenti í samstuði við Asmir Begovic í marki Bournemouth, og þurfti svo að fara af velli vegna meiðsla á ökkla. Dele Alli bætti upp fyrir rangstöðumark Kane skömmu seinna með marki eftir fyrirgjöf Serge Aurier. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og jaftn með liðunum í leikhléi. Alli var aftur á ferðinni í seinni hálfleik, í þetta skipti lagði hann upp mark Son Heung-min. Son var ekki hættur því hann bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Tottenham á 87. mínútu. Sege Aurier gulltryggði svo sigur Tottenham með fjórða markinu á 90. mínútu. Enski boltinn
Þjálfarakapall knattspyrnusumarsins 2024: Hver tekur við Brighton, Bayern, Chelsea eða þá Man United? Fótbolti
Þjálfarakapall knattspyrnusumarsins 2024: Hver tekur við Brighton, Bayern, Chelsea eða þá Man United? Fótbolti