Telja efnafólki hyglað á kostnað gamalmenna í Garðabæ Garðar Örn Úlfarsson skrifar 2. febrúar 2018 05:30 Þórður M. Adólfsson og Gunnar H. Jónsson við gatnamót Herjólfsbrautar og gamla Álftanesvegar sem bæjaryfirvöld ætla að loka. vísir/anton brink „
Það lítur út fyrir að bæjastjórnin ætli að fórna hagsmunum okkar gamalmennanna til að þóknast efnafólkinu í þessu nýja prýðishverfi,“ segir Gunnar H. Jónsson, íbúi í Naustahlein í Garðabæ. Í Hleinum eru tvær götur með raðhúsum fyrir sextíu ára og eldri. Hefðbundin leið þangað er um gamla Álftanesveginn fram hjá Prýðahverfi. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu ætla bæjaryfirvöld í Garðabæ að loka umferð um gamla Álftanesveginn inn á Herjólfsbraut þar sem hún liggur í suður inn í Hafnarfjörð og í átt að Vöngunum í Hafnarfirði þar ofan við og svo að Hleinum í Garðabæ þar vestan við. Suður af Hleinum er Hrafnista, sem er Hafnarfjarðarmegin. Fréttablaðið hefur sagt frá kæru hjóna í Heiðvangi til úrskurðarnefndar auðlinda- og umhverfismála vegna ákvörðunarinnar um vegalokunina. Í desember 2015 sendu íbúarnir í Hleinum í Garðabæ mótmælaskjal 78 íbúa, sem er 98 prósent þeirra sem búa þar. Mótmælin höfðu ekki áhrif. Gunnar, ásamt Þórði M. Adólfssyni sem býr í Boðahlein, hefur verið fremstur í flokki að mótmæla lokuninni inn á Herjólfsbraut. Í svari Guðjóns E. Friðrikssonar bæjarritara til þeirra er útskýrt að ákveðið hafi verið áður en Prýðahverfi var byggt að loka gamla Álftanesveginum þannig að ekki yrði gegnumakstur um hverfið. Brýnt væri að þar yrði ekki þung umferð. „Það hlýtur almennt að teljast mjög eðlilegt að beina ekki umferð um íbúðarhverfi sem á þangað ekki erindi,“ undirstrikar bæjarritarinn. „Þetta finnst mér skjóta skökku við þegar bæjarstjórinn sjálfur ráðleggur okkur að aka í gegn um Miðvanginn í Hafnarfirði og þaðan út á Reykjavíkurveg,“ segir Gunnar um þessi rök. Bærinn hefur bent íbúum Hleina á að hægt verði að aka gamla Álftanesveginn til vesturs út á Álftanes, þar inn á nýja Álftanesveginn og þá til austurs að miðbæ Garðabæjar. Gunnar og Þórður segja þetta ekki ásættanlega lausn. Fram og til baka þýði þetta meira en 5 kílómetra aukaakstur miðað við núverandi leið. Þess utan séu gatnamótin við nýja Álftanesveginn stórhættuleg. Þá tefji lokun við Herjólfsbraut neyðarflutninga, meðal annars frá Hrafnistu, „Fyrir menn sem eru með meira en milljón í mánaðarlaun skiptir kannski engu máli að aka einhverja Krísuvíkurleið að óþörfu en fyrir okkar hóp sem höfum kannski tvö hundruð þúsund krónur á mánuði munar um viðbótarkostnað sem því fylgir,“ segir Gunnar H. Jónsson. Á opnum fundi Gunnars Einarssonar bæjarstjóra á miðvikudag þrýstu íbúar úr Prýðahverfi á bæjarstjórann að loka veginum strax en Gunnar minnti á að fyrrnefnd kæra er enn óútkljáð. Veginum yrði hins vegar lokað þegar niðurstaða þar er fengin.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira