Dyche: Pep velur árangur fram yfir unga leikmenn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. febrúar 2018 22:30 „Hvar eru uppöldu leikmennirnir? Hvar?“ Vísir/Getty
Sean Dyche, knattspyrnustjóri Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Burnley, segir kollega sinn hjá Manchester City, Pep Guardiola, hafa gefist upp á ungum leikmönnum svo hann geti náð árangri. Spánverjinn Guardiola hefur eytt nærri 450 milljónum króna í fjórum félagsskiptagluggum hjá Manchester City. Þá hefur hann ekki leyft einum einasta leikmanni úr akademíu félagsins að fá sæti í byrjunarliði sínu í leikjum City í ensku úrvalsdeildinni. „Þeir eru með frábært lið, á því er enginn efi. En tímarnir hafa breyst. Í dag þá safnar þú saman bestu leikmönnum heims og býrð til lið úr þeim,“ sagði Dyche á blaðamannafundi fyrir leik Burnley gegn City á morgun. „Sum af bestu liðum Manchester United undir Sir Alex voru sambland af góðum aðkeyptum leikmönnum og uppöldum mönnum. Hugsanahátturinn er öðruvísi í dag, því kröfurnar í úrvalsdeildinni eru orðnar miklu, miklu hærri.“ Það var áður eitt af einkennum Guardiola að hann leyfði ungu mönnunum að fá tækifæri og hann náði árangri með uppöldum mönnum. Dyche segir það vera liðna tíð. „Ég man eftir því að þegar Pep var hjá Barcelona þá sagði hann „afhverju ættir þú að kaupa leikmann þegar þú getur spilað á ungu leikmönnunum,“ en meira að segja hann er farinn að kaupa leikmenn í stað þess að spila á ungu mönnunum,“ sagði Sean Dyche. Manchester City sækir Burnley heim á Turf Moor á morgun. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 12:30.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira