Upp­gjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út ó­væntan spennutrylli í restina

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Hákon Örn Hjálmarsson átti flottan leik fyrir ÍR í kvöld.
Hákon Örn Hjálmarsson átti flottan leik fyrir ÍR í kvöld. Anton Brink

Nýliðarnir í Sindra tóku á móti ÍR í fyrstu umferð Bónus deild karla sem hófst í kvöld. Leikur sem leit lengi út fyrir að ætla vera þægilegur sigur Breiðhyltinga endaði í svakalegum spennuleik þar sem ÍR sigraði með sex stigum 91-97.

Kaleb Lamar Higgins setti fyrstu stig leiksins á töfluna fyrir Sindra og kom þeim yfir strax í fyrstu sókn. Kristján Fannar Ingólfsson svaraði því með þrist fyrir ÍR strax í næstu sókn og var það ákveðin fyrirboði fyrir það sem var í vændum fyrir nýliða Sindra í kvöld.

Gestirnir frá Breiðholti tóku strax öll völd á leiknum og byrjuðu að safna góðu forskoti og leiddu nokkuð sannfærandi eftir fyrsta leikhluta 19-32.

Sóknarleikur Sindra var betri í öðrum leikhluta og það var eins og þeir væru svolítið að ná að hrista af sér skrekkinn sem þeir virtust hafa í byrjun leiks. Varnarlega átti Sindri þó í stökustu vandræðum með Kristján Fannar Ingólfsson sem setti 16 stig í fyrri hálfleik.

Tilfinningin var svolítið að ÍR hafi stigið af bensíngjöfinni og ekki verið jafn grimmir á körfuna í öðrum leikhluta og þeir voru í þeim fyrsta. Þrátt fyrir það þá hleypti ÍR heimamönnum í Sindra aldrei nálægt sér og þeir fóru með góða tólf stiga forystu inn í hálfleikinn 44-56.

Kaleb Higgins opnaði þriðja leikhlutann af vítalínunni fyrir Sindra og setti niður tvö víti til að koma seinni hálfleiknum af stað. ÍR svaraði því með góðu áhlaupi og hótaði því að hlaupa endanlega með leikinn en Sindri gerði vel að saxa á forskot þeirra aftur og hélt leiknum í rúmlega tíu stiga mun.

ÍR fann gírinn sem þeir byrjuðu leikinn í og náðu að koma muninum upp í 20 stig en Kaleb Higgins setti niður tvö vítaskot fyrir heimamenn áður en leikhlutinn var úti og staðan eftir þriðja leikhluta 66-84 ÍR-ingum í vil.

Það var ekkert sem benti til annars en að ÍR myndi fara með bæði stigin með sér í Breiðholtið og fjórði leikhlutinn átti bara að vera formsatriði fyrir ÍR.

Sindri var þó ekki á sama máli og byrjuðu smátt og smátt að éta niður gott forskot ÍR. Þegar um tvær mínútur voru eftir hafði Birgir Leó Halldórsson minnkað muninn niður í fjögur stig með þrist lengst utan af velli og allt í einu virtist hið ómögulega ætla að vera mögulegt.

ÍR sýndi þó styrk undir lokin til að klára þetta og fóru að lokum með góðan sigur 91-97 þrátt fyrir hetjulega baráttu Sindra undir restina.

Atvik leiksins

Ég hafði mjög gaman að því þegar Motez Mathis tróð undir lok þriðja leikhluta og viðbrögðin af bekknum við því. Þetta voru tilþrif.

Verð svo einnig að nefna fjórða leikhlutann hjá Sindra. Var aðdáunarvert að þessa hetjulegu baráttu sem var svo nálægt því að skila þeim einhverju úr þessum leik.

Stjörnur og skúrkar

Kristján Fannar Ingólfsson var frábær í liði ÍR í kvöld. Var að skjóta vel og endaði með 21 stig. Montez Mathis var einnig öflugur og endaði með 22 stig og þá var Kevin Kone með tvöfalda tvennu 17 stig og 14 fráköst.

Hjá Sindra var Kaleb Higgins atkvæðamestur með 29 stig. Birgir Leó Halldórsson átti þá stórar körfur í leiknum líka og endaði hann með 19 stig

Dómararnir

Kristinn Óskars, Jón Þór og Bergur Daði sáu um flautuna í kvöld. Mér fannst þeir komast bara virkilega vel frá sínu í kvöld. Vel dæmt í Ice Lagoon höllinni.

Stemning og umgjörð

Það var stuð og stemning í Ice Lagoon höllinni í kvöld. Þétt setið og flottur stuðningur. Skemmtilegt að fá ný lið í deildina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira