Sanchez: Draumi líkast að vera kominn til United Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. janúar 2018 23:00 Sanchez skrifaði undir samning til fjögurra og hálfs árs við United
Alexis Sanchez ljóstraði því upp í dag að hann hafi verið nálægt því að ganga í raðir Manchester United þegar Sir Alex Ferguson var við stjórnvöllinn. Hann gekk til liðs við félagið í dag, sem að eigin sögn er það stærsta á Englandi. Sanchez kom til United í skiptum fyrir Henrikh Mkhitaryan sem fór til Arsenal í hans stað. Skiptin eru búin að vera í undirbúningi undanfarna daga en voru staðfest í dag. „Mig hefur alltaf dreymt um að spila fyrir Manchester United,“ sagði Sanchez í viðtali við sjónvarpsstöð félagsins í dag og bætti við að hann væri „ekki bara að segja þetta því ég er komin hingað núna.“ „Ég talaði einu sinni við Alex Ferguson um að koma hingað. Við spjölluðum í um 20 mínútur og ég sagði honum að mig dreymdi um að koma hingað til Manchester United.“ Sílemaðurinn er 29 ára og hefur verið á mála hjá Arsenal síðan 2014, en þar áður var hann hjá Barcelona undir stjórn Pep Guardiola. „Þetta er risastórt félag. Þegar ég fékk tækifæri til að koma hingað, ég fékk gæsahúð, því þetta er sterkasta og stærsta félag á Englandi.“ „Þessi klúbbur hefur alltaf knúið mig áfram, rauði liturinn á treyjum Manchester United sker sig úr og ég er virkilega að tala frá hjartanu þegar ég segi að þetta sé draumi líkast og ég er virkilega ánægður,“ sagði Alexis Sanchez.
Enski boltinn Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira