Innlent

Fallið frá ákæru í grófu handtökumáli

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Lögregla er sögð hafa skellt bílhurð á fætur manns.
Lögregla er sögð hafa skellt bílhurð á fætur manns. vísir/eyþór
Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál á hendur lögreglumanni sem kærður var síðastliðið vor fyrir ólöglega handtöku og alvarlega líkamsárás í Kópavogi. Eins og Fréttablaðið greindi frá í júlí síðastliðnum tvífótbrotnaði hinn handtekni í umræddri aðgerð lögreglu.

Við rannsókn málsins var leitað til réttarmeinafræðings sem taldi bæði mögulegt og líklegt að fótbrotið hafi hlotist af því að hurð hafi verið skellt á fætur sem voru á milli hurðar og dyrakarms. Þá taldi hann ekki útilokað að sambland af kylfuhöggum og hurðarskellum gætu hafa orsakað beinbrotin þótt hurðarskellirnir einir hefðu getað orsakað bæði brotin.

Þótt saksóknari hafi fallist á að gögn málsins bendi til að gæta hefði mátt betur að meðalhófi í störfum á vettvangi, verði hins vegar ekki sýnt fram á að lögreglumenn á vettvangi hafi af ásetningi eða stórfelldu gáleysi ekki gætt lögmætra aðferða við handtökuna. Að mati saksóknara er því ekki talið að framkomin gögn séu nægileg eða líkleg til sakfellis í sakamáli og er málið því fellt niður.

Kærandinn hefur þegar kært ákvörðun héraðssaksóknara til ríkissaksóknara. Í kærunni kemur meðal annars fram að kærandinn og fjölmörg vitni hafi staðfest að lögreglumenn hafi brugðist við með offorsi þegar kærandi gat ekki þulið upp kennitölu sína. „Þeir drógu hann strax í kjölfarið, járnaðan fyrir aftan bak, inn í lögreglubifreið þar sem hann lá, innan við mínútu síðar, tvífótbrotinn eftir bílhurð og lögreglukylfu,“ segir í kærunni.




Tengdar fréttir

Upptöku vantar af harkalegri handtöku

Tuttugu mínútna bút vantar í upptöku úr öryggismyndavél frá því þegar maður tvífótbrotnaði við handtöku. Ástæðan fyrir því að ekki er til upptaka er ekki kunn en héraðssaksóknari rannsakar málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×