Tvítugur Celtics-aðdáandi vann hundruð milljóna dollara Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. janúar 2018 09:09 Shane Missler er mikill Celtics-aðdáandi en hér sést hann á leik með systur sinni.
Shane Missler, tvítugur Boston Celtics aðdáandi frá Flórída í Bandaríkjunum datt heldur betur í lukkupottinn um síðustu helgi. Hann vann 451 milljón dollara í Mega Millions lottóinu. BBC greinir frá. Í íslenskum krónum er upphæðin um 46 milljarðar en Missler ákvað reyndar að fá eingreiðslu upp á 281 milljónir dollara, um 30 milljarða króna, í stað þess að þiggja heildarvinningin yfir lengra tímabil. Vinningurinn er sá fjórði stærsti í sögu Bandaríkjanna en Missler var með fimm tölur auk bónustölunnar réttar þegar dregið var fyrir viku síðan. Hann fór með vinningsmiðann á skrifstofur lottósins í gær ásamt föður hans og lögfræðingi. Hann hefur miklar hugmyndir um hvað hann ætli að gera við vinninginn. „Ég er bara tvítugur en ég vonast til þess að geta gert ýmislegt, hjálpa fjölskyldunni minni og vonandi gera eitthvað gott fyrir mannkynið,“ sagði Missler í tilkynningu frá lottóinu. Lögfræðingur Missler segir að hann hafi sagt upp störfum hjá vinnuveitenda sínum en hann keypti svokallaðan sjálfvalsmiða í 7-Eleven í heimabæ sínum í Flórída. Í samtali við https://www.tampabay.com/news/Florida-man-20-claims-450M-Mega-Millions-jackpot_164445230https://www.tampabay.com/news/Florida-man-20-claims-450M-Mega-Millions-jackpot_164445230 segir Missler að hann ætli nú að skemmta sér. „Ég ætla að sjá um fjölskylduna, skemmta mér og tryggja það að peningarnir geri það að virkum að ég skilji eftir arfleið langt fram í tímann.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira