Neðri-Dalur við Geysissvæðið óseldur Haraldur Guðmundsson skrifar 20. janúar 2018 07:00 Neðri-Dalur er með Geysissvæðið nánast í bakgarðinum hjá sér. Mynd/Stakfell
Jörðin Neðri-Dalur í Biskupstungum er enn óseld en hún er 1.200 hektarar að stærð og sú næsta við Geysissvæðið í Haukadal. Þetta staðfestir Þorlákur Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Stakfells, og segir engar frekari viðræður hafa átt sér stað við kínverska fjárfesta sem lýstu síðasta sumar yfir áhuga á að skoða kaup á jörðinni. „Það hefur ekkert gerst enn sem komið er. Það má segja að þetta sé á sama stað og í ágúst en þetta tekur allt langan tíma og mælt í mörgum mánuðum frekar en vikum,“ segir Þorlákur. Fréttablaðið greindi í lok ágúst síðastliðins frá áhuga kínverskra fjárfesta á jörðinni. Kom þá fram að ásett verð væri 1,2 milljarðar króna og að fjárfestarnir horfðu helst til staðsetningar jarðarinnar og þess að þar er heitt vatn. Fasteignasali hjá Stakfelli sagði þá að Kínverjarnir vildu byggja upp ferðamannatengda starfsemi en fasteignasalan hafði þá útbúið sölukynningu á íslensku og ensku. Átta bræður eiga jörðina og ætla þeir að taka smá skika fyrir sumarbústaði sína. Þorlákur segir ekki koma til greina að lækka verðið. „Nei, ég gef ekkert eftir. Ekki gramm. Enda er þetta perla sem mun seljast að lokum og við þurfum bara einn kaupanda og hann kemur,“ segir Þorlákur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Erlent Þúsundir hafi orðið af milljónum Innlent Níu í lífshættu eftir stunguárásina Erlent Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Erlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Erlent Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Innlent Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Innlent Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Erlent Fleiri fréttir Velunnarar hefja söfnun fyrir ekkju Hjörleifs Þúsundir hafi orðið af milljónum Hundrað þúsund færri kindur í dag en fyrir tíu árum Dökk mynd í byggingariðnaði, umsvif RÚV og fækkun fjár Losun gróðurhúsalofttegunda jókst í Reykjavík Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Kosningahugur í eigendum frístundahúsa Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Getur gervigreindarsmjaður leitt til gervigreindargeðrofs? Söguleg óvissa á fasteignamarkaði og meðvirk gervigreind Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar mun hærri en landsmeðaltalið Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Breytingar sem litlu breyta og mokstursmenn þakka veðurguðunum Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Borgin tekur út framkvæmdir við Vesturbæjarlaug Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Tilkynnt um bíl fullan af flugeldum Valhöll auglýst til sölu Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Sjá meira