Philippe Coutinho: Ég er rólegur því þetta mál er búið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2017 16:00 Philippe Coutinho og knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Philippe Coutinho er með fulla einbeitingu á því að spila fyrir Liverpool þrátt fyrir að Barcelona hafi sýnt honum mikinn áhuga í haust. Liverpool hafnaði þremur tilboðum Barcelona í Philippe Coutinho sem spilaði ekkert með Liverpool þegar allt þetta gekk á. Liverpool vildi ekki selja hann þrátt fyrir að spænska stórliðið hafi boðið í hann allt að 118 milljón pundum. Coutinho hefur verið að koma meira og meira inn í Liverpool-liðið og í síðustu leikjum hefur hann sýnt að hann er kominn í leikform á ný. „Ég er rólegur því þetta mál er búið,“ sagði Philippe Coutinho sem hefur byrjað síðustu þrjá leiki Liverpool og skorað í síðustu tveimur. Sky Sports segir frá. „Ég er hér til að gera allt sem ég get fyrir félagið,“ sagði Coutinho sem skoraði jöfnunarmark Liverpool á móti Spartak Moskvu í Meistaradeildinni í vikunni. „Þetta voru ekki úrslitin sem við vonuðumst eftir en við verðum að halda vinnunni áfram og það eru fjórir leikir eftir í riðlinum,“ sagði Coutinho. Hann hefur sett stefnuna á að komast í HM-hóp Brasilíumanna. „Ég vona að ég verði valinn. Ég vil komast betur inn í hlutina í hvert skipti sem ég er valinn og við náum vonandi að bæta okkur sem landslið til að ná árangri næsta sumar,“ sagði Coutinho. Næsti leikur Liverpool er hinsvegar á móti Newcastle á útivelli á sunnudaginn.Philippe Coutinho fagnar marki sínu í Meistaradeildinni í vikunni.Vísir/Getty
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjá meira