Hestaleiga er bótaskyld vegna hests sem sturlaðist Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. apríl 2017 07:00 Konan fór á bak og þegar hestinum var sleppt þá rauk hann af stað. Vísir/Vilhelm
Hæstiréttur Íslands féllst í síðustu viku á skaðabótakröfu konu sem slasaðist í skipulagðri hestaferð hjá Kálfholti hestaferðum. Konan féll af baki og hlaut við það beinbrot á framhandlegg og rifbeini auk þess að bólgna og hljóta mar á baki og hálsi. Áður hafði Héraðsdómur Suðurlands fallist á kröfu konunnar. Slysið átti sér stað í ágúst 2013 í fjögurra daga hestaferð sem auglýst var fyrir fólk sem hefði einhverja reynslu af hestaferðum og væri hún ekki fyrir byrjendur. Að mati leiðbeinenda ferðaþjónustufyrirtækisins þá var geta hópsins minni en búist hafði verið við og hefði því verið ákveðið að taka inn í ferðina hesta sem hentuðu hópnum betur. Þar á meðal hefði verið hrossið sem konan féll af. Að sögn eigenda fyrirtækisins þá var þar um að ræða þægan barnahest. Konan fór á bak og þegar hestinum var sleppt þá rauk hann af stað. Ljóst þótti að hjálmur konunnar bjargaði því að ekki fór verr en skarð kom í hann. Hún missti meðvitund við fallið. Í dómnum kemur fram að hesturinn hafði farið í hestakerru um 30 kílómetra leið og síðan verið komið fyrir í um klukkustund í gerði með hrossum sem sum voru honum ókunn. Forsvarsmaður hestaleigunnar telur mögulegt að ferðin í kerrunni hafi valdið streitu hjá hestinum auk þess sem það kunni að hafa valdið ótta hjá honum að vera í gerði með ókunnugum hestum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira