Búin að tína 2.200 kíló af rusli í fjörum á Reykjanesi Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2017 11:16 Stúlkur í fjórða flokki Reynis og Víðis söfnuðu 660 kílóum af rusli á Garðskaga. Aðsent
Búið er að safna 2.200 kílóum af rusli í strandhreinsunarátaki á Reykjanesi sem hófst í síðasta mánuði. Fyrsta holl hreinsunarinnar fór fram í Grindavík í byrjun júnímánaðar þar sem safnaðist 1.500 kíló af rusli. Sjálfboðaliðar úr Ungmennafélagi Grindavíkur tóku þar þátt í hreinsuninni. Í tilkynningu segir að síðastliðinn miðvikudag hafi svo verið gengið um fjöruna hjá Garðskagavita þar sem stúlkur í fjórða flokki Reynis og Víðis söfnuðu 660 kílóum af rusli. Næsti hreinsunardagur er svo fyrirhugaður í Sandgerði í júlí. Að átakinu standa Nettó, Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjunum og Bláa hersins. Haft er eftir Tómasi J. Knútssyni, sem fer fyrir Bláa hernum, að það sé með ólíkindum að svo mikið rusl hafi safnast á svæðinu. Hann hafi sjálfur nýverið tínt slatta og kíki gjarnan þarna við, enda búsettur nálægt. Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, sem reka Nettó, segist hæstánægður með gang mála. „Við viljum leggja okkar að mörkum og fáum til liðs við okkur fólk frá hverju bæjarfélagi fyrir sig til að hjálpa okkur í þessu verkefni. Það er ekki annað hægt en að hrósa unga fólkinu af svæðinu sem gefur ekkert eftir. Okkur hefur gengið afar vel að safna rusli og erum bjartsýn á að þetta haldi svona áfram, enda rétt að byrja,“ er haft eftir Gunnari Agli í tilkynningunni.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira