Ríkisendurskoðun hvetur stjórnvöld til að grípa til aðgerða vegna yfirvofandi kennaraskorts Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. febrúar 2017 11:26 Kennarar voru í mikilli kjarabaráttu fyrir áramót og má hér sjá hóp þeirra koma saman í Hagaskóla þar sem borgarstjórn fundaði en skömmu áður höfðu þeir staðið fyrir samstöðufundi í Háskólabíó. Ríkisendurskoðun segir endurnýjun í stéttinni ekki nægilega mikla. vísir/ernir
Ríkisendurskoðun hvetur stjórnvöld til að grípa til aðgerða svo koma megi í veg fyrir aðsteðjandi kennaraskort hér á landi í nýrri stjórnsýsluúttekt stofnunarinnar sem ber heitið Kostnaður og skilvirkni kennaramenntunar - Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri. Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar segir að frá árinu 2009, þegar kennaranám var lengt úr þremur árum í fimm, hafi mikil fækkun orðið í skráðum deildum við skólana tvo. Því sé það nú svo að háskólarnir „ná ekki að brautskrá nægilega marga kennara til að viðhalda eðlilegri nýliðun í stéttinni.“ Þá eru kennaradeildir bæði Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri „hvattar til að leita leiða til að laða nýnema í kennaranám og til þess að auka skilvirkni í kennaranámi,“ eins og segir í frétt Ríkisendurskoðunar. Þar kemur eftirfarandi jafnframt fram: „Talið er að um 60% menntaðra leikskólakennara og um helmingur menntaðra grunnskólakennara séu við kennslustörf í leik- og grunnskólum landsins. Það bendir til að kennaraskortur verði ekki eingöngu leystur með fjölgun kennaranema heldur sé einnig mikilvægt að laða menntaða kennara til starfa og hvetja þá til að halda áfram störfum innan stéttarinnar.“ Þá er auk þess vikið að því að ekki hafi verið þróaðir opinberir mælikvarðar hér á landi til þess að meta skilvirkni og kostnað háskólakennslu þrátt fyrir að Ríkisendurskoðun hafi hvatt til þess og er mennta-og menningarmálaráðuneytið áfram hvatt til að þróa slíka mælikvarða. „Ef litið er til endurkomu- og brautskráningarhlutfalls kennaranema við skólana tvo á undanförnum árum virðist hlutfallið hærra hjá Háskólanum á Akureyri og telst hann því skilvirkari í starfi sínu en Háskóli Íslands. Kennaranám við Háskóla Íslands virðist á hinn bóginn heldur ódýrara en við Háskólann á Akureyri. Á árunum 2013–15 varði Háskóli Íslands að meðaltali um 74 færri vinnustundum og greiddi rúmlega 235 þús.kr. minna í laun við að mennta hvern brautskráðan kennaranema en Háskólinn á Akureyri. Árið 2015 kostaði hver brautskráður nemandi, sem lauk fimm ára kennsluréttindanámi á tilskildum námshraða, ríkissjóð að lágmarki um 4,3 m.kr. Raunkostnaður eykst þó vegna nemenda sem ljúka námi á lengri tíma og vegna þeirra sem hætta námi. Því telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að auka skilvirkni kennaradeildanna með því að draga úr brotthvarfi nemenda og auka námshraða þeirra,“ segir á vef Ríkisendurskoðunar en skýrsluna má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira