Ættingjar í ummælakerfinu komu Cherie til aðstoðar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. nóvember 2017 10:05 Cherie man vel eftir Helga sem man aftur á móti ekkert eftir Cherie.
Maðurinn sem Cherie Lockett, bandarísk kona frá Anna Arbor í Michigan í Bandaríkjunum, leitaði að heitir Helgi Hannesson og býr í Reykjavík. Helgi flutti til Bandaríkjanna á fimmta aldursári og bjó fyrst í Michigan en síðan í New Jersey.Fjallað var um málið í Fréttablaðinu í gær þar sem Cherie sagði frá kynnum þeirra Helga á árunum 1961-1962. „Þegar ég var átta ára gömul var ég í þriðja bekk í Northside-grunnskólanum árið 1961-62 í Ann Arbor í Michigan. Þá var ég svo heppin að hitta Helga frá Íslandi,“ sagði Cherie í samtali við Fréttablaðið.Frændi og frænka Helga Hannessonar könnuðust svo sannarlega við sinn mann.Cherie átti mynd af Helga sem hún sendi blaðamanni í von um að finna hann. Í ummælum við fréttina á Vísi stigu nokkrir ættingjar Helga fram, þekktu greinilega sinn mann. Helgi man ekki eftir Cherie en segir í Fréttablaðinu í dag að henni sé frjálst að hafa samband við sig á Facebook. „Ég man ekkert eftir þessari konu og hef því ekkert um hana að segja,“ sagði Helgi í viðtali við Nútímann í gær. Cherie man aftur á móti vel eftir Helga og ber honum vel söguna. „Helgi var algjört uppáhald, bjartur yfirlitum, vinalegur og forvitinn. Hann hafði fallegt bros og rautt hár sem greindi hann frá öðrum. Hann kom frá landi sem virtist vera svo óralangt í burtu,“ segir Cherie. Nú er að bíða og sjá hvort leiðir þeirra Cherie og Helga muni liggja saman.
Tengdar fréttir Leitar gamals bekkjarbróður síns á Íslandi Bandarísk kona leitar manns sem hún þekkti fyrir næstum sextíu árum. Hefur hlýjar minningar um manninn, sem heitir Helgi. 9. nóvember 2017 07:00 Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira
Leitar gamals bekkjarbróður síns á Íslandi Bandarísk kona leitar manns sem hún þekkti fyrir næstum sextíu árum. Hefur hlýjar minningar um manninn, sem heitir Helgi. 9. nóvember 2017 07:00