Ekki spurning um hvort heldur hvenær Jóhann K. Jóhannsson skrifar 11. apríl 2017 19:30 Ástandið á Biskupstungnabraut er bágborið Vísir/Stöð 2
Oddviti Bláskógabyggðar segir að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær alvarleg umferðarslys verði á Biskupstungnabraut á meðan vegurinn sé ekki lagaður. Ríflega tvöfalt fleiri óku veginn á síðasta ári heldur en um Holtavörðuheiði á sama tímabili. Fjallað var um málið í Bítinu á Bylgjunni í gær en oddviti Bláskógabyggðar segir veginn um uppsveitir Árnessýslu að Gullfossi og Geysi vera hættulega slysagildru. Ekki nóg með hvað vegurinn er þröngur heldur er hann meira og minna skemmdur vegna umferðarþunga sem þar fer um enda svæðið einn vinsælasti viðkomustaður erlendra ferðamanna í dvöl sinni á Íslandi. Á síðasta ári óku 1.262.200 ökutæki um Biskupstungnabraut við Selfoss en til samanburðar fóru 689.500 ökutæki um Mosfellsheiði og 507.200 ökutæki óku um Holtavörðuheiði. Og þetta er það sem ferðamönnum sem aka um Biskupstungnabraut er boðið upp á. Vegur sem er ómerktu í miðju og ætti að tryggja öryggi og handónýt malbik og handónýtur vegur. Djúpar holur með grjóti sem geta skemmt bíla og tilheyrandi slysahættu. Eru þá er ótaldar vegkantar þar sem malbik hefur brotnað undan þunga þeirra hópferðabifreiða og annarra stórra ökutækja sem um veginn fara. Stutt er síðan rúta fór út af Þingvallavegi eftir að vegkantur gaf sig undan rútu með þeim afleiðingum að hún fór út af. „Ástandið á þessum vegum er mjög slæmt, það er bar eitt orð. Þetta eru bara ónýtir vegir og það þarf að byggja þá upp frá A til Ö, sérstaklega Þingvallaveginn. Biskupstungnabrautin, þar eru mjög slæmir kaflar en ágætis kaflar inn á milli en heilt yfir er Biskupstungnabrautin mjög illa farin,“ segir Helgi Kjartansson, oddviti í Bláskógabyggð. Ekki er gert ráð fyrir nýframkvæmdum á svæðinu fyrir utan framkvæmdir sem standa yfir á um kílómetra kafla við Geysi. Helga finnst svæðið hafa orðið út undan í nýúrkominni Samgönguáætlun. „Klárlega! Hér kemur 80-90% af öllum ferðamönnum á þetta svæði, plús íbúarnir og plús frístundabyggðin. Það segir sig sjálft að vegakerfið er ekki hannað fyrir þessa umferð og þetta er bara að hruni komið og það verður að bregðast við því nú eru spár um fjölgun ferðamanna, þær eru áfram 20-30% á ári og það verður að gera eitthvað það er ekki hægt að bíða endalaust,“ segir Helgi. Helgi segist bíða eftir að stórt slys verði á veginum en vonar þó að svo verði ekki. „Já við gerum það og lögregluyfirvöld líka hérna á Suðurlandi og þau eru bara með þetta í lúkunum þetta ástand á þessu svæði og ég held að sé ekki spurning hvort heldur hvenær,“ segir Helgi.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira