Stríðsástand við Jökulsárlón Jakob Bjarnar skrifar 24. mars 2017 15:35 Ásgeir Long kom að ferðamönnum í öngum sínum við Jökulsárlón en rúður um 40 bíla höfðu splundrast í sterkum vindhviðum sem léku bílana grátt. mynd/ásgeir Long
Neyðarástand ríkti við Jökulsárlón nú í dag en svo öflugar voru vindhviður þar að rúður bíla brotnuðu. Ásgeir Ingi Jóhannesson Long leiðsögumaður segir að náttúran hafi heldur betur gefið ferðalöngum dagsins gott kjaftshögg. „Um 40 bílar misstu rúður í öflugum vindhviðum.“ Ásgeir greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni nú fyrir skemmstu og birtir myndir af bílum þar sem sjá má að rúðurnar hafa bókstaflega splundrast. Sjálfur slapp hann við þessi ósköp en segir að þegar hann kom þar að hafi ríkt hálfgert stríðsástand. Vísir hafði samband við Veðurstofuna sem sagði að á Kvískerjum hafi fóru hviðurnar uppí 40 metra á sekúndu. Meðalvindurinn var í kringum 20 en svo datt það niður eftir hádegi. Verst var veðrið í kringum 11 leytið, það rauk upp þá. Veðurfræðingurinn sem fyrir svörum var sagðist ekki geta svarað fyrir það hvort slíkur vindhraði færi með rúður í stórum stíl, það gæti vel orðið ef möl eða grjót fer að fjúka upp. Þetta sé vindasamur staður. Ekki var eins hvasst á öðrum stöðum þarna fyrir austan, hvergi nærri því. En, þetta er vetrarveður. Það var slæmt á Vesturlandi í gær. Þar fóru vindhviður uppí 50 metra. Á morgun er gert ráð fyrir slæmu veðri, hviðóttu og leiðinlegu og gengur á með éljum. Rigningaveður verður í nótt á Suður- og Vesturlandi sem svo færist yfir landð. Meðalvindur verður 15 til 23 metrar, sem telst hefðbundinn stormur. En, vindhviðurnar gætu vel farið uppí eitthvað svipað eða 40 metra á sekúndu.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Fleiri fréttir „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Sjá meira