Hljóðfæri metin á milljarða koma til landsins Sæunn Gísladóttir skrifar 22. júní 2017 07:00 Víkingur Heiðar. Vísir/GVA
Í tilefni af Reykjavik Midsummer Music hátíðinni sem fer fram í Hörpu koma átta strengjaleikarar til landsins. Að sögn Víkings Heiðars Ólafssonar, listræns stjórnanda hátíðarinnar, koma þeir frá öllum heimshornum og með hljóðfæri metin á milljarða með sér. „Þetta eru fiðluleikarar, víóluleikarar og sellóleikarar sem eru að koma til landsins. Þetta eru með fremstu tónlistarmönnum í heimi og vegna þess að þeir eru meðal þekktustu einleikara veraldar er þetta fólk að spila á sum dýrmætustu og stórkostlegustu hljóðfæri sem til eru. Þetta eru allt hljóðfæri sem auðkýfingar eða bankar eiga og fólki er lánað því það hefur enginn hljóðfæraleikari efni á svona hljóðfærum,“ segir Víkingur. Þetta eru meira eða minna allt Stradivarius hljóðfæri sem eiga sér langa sögu, upprunalegu Stradivarius hljóðfærin voru smíðuð á 17. og 18. öld. „Þau eru með tón sem maður trúir ekki að sé til fyrr en maður heyrir það, það er ótrúlegt hvaða tóna er hægt að ná út úr svona tréboxi með strengjum og boga,“ segir Víkingur. „Maður vill eiginlega ekki tala of mikið um hvað hljóðfærin kosta því maður er bara hræddur um að það verði ráðist á hljóðfæraleikana og þeir rændir,“ segir Víkingur kíminn. Hann bendir á að það sé skemmtilegt hvað þessi hljóðfæri eru lifandi þar sem listamenn sem njóta þeirra forréttinda að leika á þau taka þau með sér og ferðast um heiminn. Hljóðfæraleikararnir átta sem koma fram hér á landi koma alls staðar að úr heiminum. „Einn japanskur fiðluleikari kemur með Stradivarius fiðlu sem Napoleon Bonaparte, keisari Frakklands, átti einu sinni. Svo kemur strákur frá Ungverjalandi með fyrsta þekkta Stradivarius sellóið," segir Víkingur. Midsummer Music hátíðin hefst á morgun og stendur til sunnudags með tónleikum hvert kvöld.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Sjá meira