Stórbruni er bátasmiðja brann til kaldra kola Sveinn Arnarsson skrifar 1. júní 2017 07:00 Húsið er gjörónýtt eins þessi drónamynd sýnir. vísir/auðunn
Bátasmiðjan Seigur á Akureyri brann til kaldra kola í fyrrinótt og er tjónið líklega upp á hundruð milljóna króna. Húsnæðið, sem er um tvö þúsund fermetrar að stærð, er ónýtt ásamt öllu sem inni í því var. Slökkviliði Akureyrar barst tilkynning um eld í bátasmiðjunni klukkan 00.39 aðfaranótt miðvikudagsins. Þegar ljóst var að um stórbruna var að ræða voru allar vaktir ræstar hjá slökkviliðinu og fenginn liðsauki frá slökkviliðinu á Akureyrarflugvelli. Aðeins sextán mínútur liðu frá því fyrsta útkall barst þar til allar aukavaktir voru komnar út úr húsi til að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn Ólafs Stefánssonar, slökkviliðsstjóra á Akureyri, tókst vel að ná tökum á aðstæðum þótt húsið hafi orðið alelda mjög fljótt. Líkur benda því til þess að eldur hafi logað í húsinu í töluverðan tíma áður en hans varð vart. „Við áttum í töluverðum erfiðleikum þar sem þakið hafði fallið niður og lokað leið okkar að eldinum sjálfum. Síðar um nóttina fengum við krabbakló frá Hringrás sem gerði okkur auðveldara um vik að rjúfa þakið og komast að eldinum,“ segir Ólafur. „Þegar mest lét voru 15 einstaklingar að störfum frá okkur um nóttina auk lögreglu sem lokaði svæðið af. Við nýttum allan okkar bílaflota, þar með talið gamla dælubíla, til að eiga við þetta.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti á árinu sem eldur kemur upp í húsinu. Í janúar kom einnig upp eldur á sama stað. „Þá varð sjálfsíkveikja í tusku sem olli nokkrum skemmdum á húsinu.“ Bátasmiðjan Seigur hét áður bátasmiðjan Seigla. Það fyrirtæki var tekið til gjaldþrotaskipta síðastliðið haust. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanns náðist ekki í forsvarsmenn fyrirtækisins við vinnslu fréttarinnar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Eldur í Árbænum Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Fleiri fréttir Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Sjá meira