Segir að spítalastjórn muni hafa jákvæð áhrif á starfsmenn Höskuldur Kári Schram skrifar 1. júní 2017 18:45 vísir/vilhelm
Formaður Prófessoraráðs Landspítalans segir að fagleg yfirstjórn myndi styrkja starfsemi spítalans og draga úr hvers konar óánægju meðal starfsmanna. Of mikill tími æðstu stjórnenda fari í að afla spítalanum fylgis hjá stjórnvöldum. Hugmyndir eru uppi um að skipa sérstaka stjórn yfir Landspítalanum og er ekki útilokað að þingsályktunartillaga þessa efnis verði lögð fram á Alþingi næsta vetur. Skiptar skoðanir hafa verið um málið en bæði landlæknir og ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa tekið vel í þess hugmynd. Það gerir Prófessoraráð Landspítalans einnig sem sendi frá sér ályktun um málið í dag. Björn Rúnar Lúðvíksson formaður ráðsins segir að öflug stjórn skipuð fagaðilum muni styrkja stjórnkerfi spítalans. „Of mikill tími okkar æðstu stjórnenda fer í það að afla spítalanum fylgis hjá hinu opinbera í staðinn fyrir að einblína á innra starf og styrkja starfsemina. Þannig að faglega öflug stjórn, eins og þekkist víða erlendis, myndi eingöngu styrkja spítalann. En hún yrði að vera fagleg,“ segir Björn. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um óánægju meðal yfirmanna á rannsóknarsviði spítalans sem vilja fá fagstjórn til að leysa úr ágreiningsmálum við yfirstjórnendur. Björn segir að sérstök spítalastjórn gæti tekið á svona málum. „Ég held að það sé alveg ljóst að með því að styrkja stjórnkerfi spítalans og að öflug stjórn myndi styrkja frekar rekstrarafkomu spítalans. Það myndi hafa verulega jákvæð áhrif á alla starfsemi,“ segir Björn.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira