AHA varð í gær fyrst fyrirtækja á heimsvísu til að bjóða viðskiptavinum sínum upp á sendingar á vörum og veitingum með sjálfstýrðum drónum innan þéttbýlis.
Verkefnið er í samstarfi við drónatæknifyrirtækið Flytrex og vakti það heimsathygli en miðlar eins og Vísir, CNBC og Forbes birtu fréttir um þessa byltingarkenndu nýjung í gær.
Starfsfólk AHA fagnaði með vinum og velunnurum í veðurblíðunni í gærkvöldi og voru gestir brosandi og í algjörum fluggír á meðan þeir gæddu sér á veitingum sem var auðvitað flogið í partýið með dróna.
Brynja Dan Gunnarsdóttir og Heiðar Logi Elíasson voru fyrstu kúnnarnir sem fengu Sushi sent heim til sín með dróna.
Fluggír í dróna partýi
Stefán Árni Pálsson skrifar

Mest lesið



Zendaya sást í miðbænum
Lífið


Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn
Bíó og sjónvarp

Sumarleg og saðsöm salöt
Lífið



