Samningur Alberts og PSV nær nú fram á mitt sumar 2019 | „Bara tímaspursmál“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2017 09:30 Albert Guðmundsson fagnar marki með 23 ára liði PSV. Vísir/Getty
Albert Guðmundsson verður áfram hjá PSV Eindhoven en félagið nýtti sér ákvæði í samningnum hans í gær og framlengdi hann um eitt ár eða til sumarsins 2019. Þetta kemur meðal annars fram í frétt í heimasíðu Eindhovens Dagblad sem er staðarblaðið í Eindhoven. Albert hefur farið á kostum með unglingaliði PSV og skoraði 18 mörk í síðustu 18 leikjum sínum í hollensku b-deildinni. Tækifærin hafa hinsvegar ekki verið mörg með aðalliðinu en hann hefur þó verið að fá nokkrar mínútur á þessu tímabili. Albert er staðráðinn að vinna sér sæti í aðalliðinu eins og kemur fram í viðtali við hann í Voetbal International. Umboðsmaður hans tekur líka undir þetta. Albert er meðal annars í samkeppni við Steven Bergwijn og Brasilíumaninn Mauro Junior sem er aðeins átján ára gamall. Phillip Cocu, þjálfari PSV, hefur notað Bergwijn meira á kantinum. Steven Bergwijn er með 2 mörk og 3 stoðsendingar á 567 mínútum með aðalliði PSV í hollensku deildinni. Mauro Junior hefur spilaði í 63 mínútur og Albert hefur komið þrisvar inná en aðeins þó spilað í fimm mínútur samanlagt. „Albert ætlar að vera áfram hjá PSV. Hann er ekki orðinn fullgildur leikmaður með aðalliðinu en hann æfir daglega með liðinu. Það er bara tímaspursmál hvenær hann verður það,“ sagði Laurens Melotte, umboðsmaður Albert, í viðtali við ED.nl. „Eftir þetta tímabil er möguleiki á því að nokkrir sóknarmenn PSV yfirgefi félagið sem ætti að búa til tækifæri fyrir Albert. Vonandi tekur hann þau skref sem hann þarf að taka og nýtir tækifærin sem koma. Við trúum því ennþá á þessari stundu að Albert eigi eftir að eiga frábæran feril hjá PSV,“ sagði Melotte.
Fótbolti Mest lesið Grét alla Reykjanesbrautina Körfubolti Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Fótbolti Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Enski boltinn Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Handbolti Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Enski boltinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Enski boltinn „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Körfubolti Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Handbolti Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Íslenski boltinn Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Fótbolti Fleiri fréttir Áfrýja niðurstöðu aganefndar Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Bournemouth búnir að tryggja sér Evrópusæti Fyrirliði FH sleit krossband Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Wrexham eiga tvo fulltrúa á HM Jota fær heiðurspláss í hóp Portúgala á HM Allir leikmenn fá aðgang að kvensjúkdómalækni Geta tryggt sig úr fallbaráttunni í kvöld Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Ronaldo á sitt sjötta HM með ógnarsterkum hópi Sammála um níu af ellefu leikmönnum tímabilsins Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Segja Maresca taka við af Guardiola Styrktarleikur í Kópavogi: „Ofboðslega verðmætt og gefur okkur mikið“ Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Hylltu Glódísi Perlu og liðsfélaga hennar Sjá meira