Veggjakrot til vandræða í stjórnkerfinu Pétur Fjelsted skrifar 21. apríl 2017 06:00 Við Laugaveg og Bankastræti má víða finna veggjakrot við hlið útsýnisglugga verslana. vísir/Pétur Fjeldsted
Uppgjöf virðist einkenna aðgerðir gegn viðvarandi veggjakroti í Reykjavík. Blaðamaður ræddi við einstakling sem stundaði veggjakrot á unglingsárum og þekkir þá hvöt sem býr að baki krotinu. „Á þessum tíma var ég í uppreisn og var alveg sama hvað ég var að skemma, vildi sýna að það skipti mig engu máli. Mér leið illa og þetta var mitt fix,“ segir veggjakrotarinn fyrrverandi, sem ekki vill láta nafns síns getið. Hann kveðst hafa leiðst út í neyslu í kjölfarið en feti nú betri braut og telur að fræðsla og forvarnir varðandi veggjakrot geti skilað árangri.Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, verkefnastjóri miðborgarmálaÍ miðborginni er veggjakrot áberandi. Cayla Jean, afgreiðslukona við Laugaveg, segir að veggjakrot hafi aukist mikið í Reykjavík. Það hafi versnað til muna undanfarin ár. „Ég bjó á Íslandi fyrir nokkrum árum. Þegar ég flutti hingað aftur sá ég mikla aukningu. Meira að segja í úthverfum Cleveland í Bandaríkjunum, heimaborg minni, er mun minna veggjakrot. Þar er mikið af ungu fólki sem stundar slíkt en mér finnst undarlegt að vandamálið sé meira á Íslandi,“ segir viðmælandi okkar.Auglýsingaskilti við Austurstræti, sem sýnir fagra náttúru Íslands, er útkrotað.Kaupmaður við Laugaveg, sem starfað hefur þar síðan 1978, segir svipaða sögu. „Þetta er sveiflukennt. Stundum mikið og stundum ekkert í langan tíma. Við eigum málningu og málum yfir veggjakrot jafnóðum. Ef það næst í þá sem krota á að vera hægt að gera eitthvað við því en það virðist ekki vera hægt. Löggan ræður ekkert við þetta.“ Þórir Ingvarsson, rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík, segir að hlutverk samfélagsins í heild sé að taka á þessum málum. Fólk á ýmsum aldri stundi veggjakrot, ekki bara börn og unglingar. Hann segir að veggjakrot flokkist sem skemmdarverk. Þau séu á könnu lögreglu en flókið geti verið að rannsaka slík mál ef ekki eru til gögn um gerendur. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir starfaði á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar og hefur góða þekkingu á þessum málaflokki. Að hennar mati snýst baráttan við veggjakrotið um langtímamarkmið og samvinnu margra aðila. Hún segir ótækt að opinberir aðilar ausi miklu fé í hreinsun veggjakrots sem skili hreinni borg einungis í nokkra mánuði, því veggjakrotið komi fljótlega aftur. Fjármunum skattgreiðenda sé þannig illa varið.Cayla Jean, afgreiðslukona við Laugaveg„Viðurlögum við veggjakroti hefur ekki verið beitt síðan 2008, því fólk veigrar sér við því að kæra. Fólk gefst upp. Þeir sem krota eru farnir þegar lögreglan kemur,“ segir Sæunn. Vandamálið er stærra en fólk gerir sér grein fyrir og hægt er að taka á með góðu móti, að mati Sæunnar. Mikilvægt sé að upplýsa almenning. „Veggjakrot hefur ekkert með vegglist að gera heldur er verið að skemma eigur fólks, svipað og að rispa bíl.“ Jafnvel geti kostað nokkrar milljónir að lagfæra steinklæðningar húsa eftir olíusprey. Ábyrgð söluaðila slíkra brúsa sé sömuleiðis mikil, ekki síður en annarra aðila. Mestu máli skipti að allir taki höndum saman í sátt og beiti aðferðum sem virki, til þess að lágmarka skaðann vegna veggjakrots.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Innlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Fleiri fréttir Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Fékk afa sinn með sér á skólabekk Lögregluaðgerð beint gegn áfengissölu í Kópavogi Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Sjá meira