Hótun um Íslandslendingu róaði flugdólga Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. september 2017 08:39 Dólgunum þótti hræðileg tilhugsun að þurfa að lenda á Íslandi. Vísir/Valli
Bresk kona hefur verið dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa látið ófriðlega í flugvél á leið frá Jamaíku til Birmingham fyrr í sumar. Konan, Kirsty Owen, lenti í háværum útistöðum við sessunaut sinn eftir að upp kom ágreiningur um hvort þeirra ætti drykk sem flugþjónn færði þeim. Það eina sem gat róað þær var tilhugsunin um að lenda í Keflavík. Bæði Owen og konan sem sat við hlið hennar eru sagðar hafa verið í annarlegu ástandi og þurfti þrjá lögreglumenn, sem sjálfir voru að koma heim úr fríi, til að halda aftur af þeim eftir misheppnaðar tilraunir áhafnarmeðlima. Þær voru að lokum færðar aftast í vélina þar sem þær voru bundnar niður. Það róaði þó ekki konurnar sem héldu áfram að ausa fýkurðum yfir hvor aðra. Saksóknari í máli Owen segir í samtali við Daily Mail að það hafi verið þá sem flugstjóri vélarinnar blandaði sér í málið. Hann hafi tilkynnt öllum í hátalarakerfi vélarinnar að hann myndi lenda vélinni á Íslandi ef konurnar myndu ekki taka sig saman í andlitinu. Það hafi virkað og konurnar verið rólegar fram að lendingu í Birmingham þar sem lögreglumenn tóku þær fastar. Kirsty Owen hefur beðist innilegrar afsökunar á hegðun sinni og segist skammast sín niður í tær. Það hafi þó farið í taugarnar á henni að hin konan hafi einungis fengið áminningu en hún dæmd til fangelsisvistar sem fyrr segir.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira